Útgáfa
Barnaherbergi, svefnherbergi, flott hönnun og skemmtileg innlit
Barnaherbergi
Það þarf að vanda til verksins þegar herbergi eru útbúin fyrir krakkana okkar. Við kíktum á nokkra hressa krakka með fyrirmyndarherbergi, tókum saman góð ráð og renndum í nokkrar búðir til að útbúa hið fullkomna barnaherbergi.
Svefnherbergi í máli og myndum
Veturinn undirstrikar mikilvægi svefnherbergisins því sjaldan er jafnánægjuríkt að kúra og um þessar mundir. Svefnherbergin vilja stundum verða útundan þannig að við hvetjum lesendur til að kíkja á myndaþáttinn og heilræðin tileinkuð þeim.
Ólafur Egill og Esther
Leikararnir Ólafur Egill Egilsson og Esther Talía Casey búa ásamt dóttur sinni, Ragnheiði Eyju, í fallegu gömlu húsi í Grjótaþorpinu.
Sigurður Kári og Birna Braga
Sigurður Kári Kristjánsson og Birna Bragadóttir búa í Vesturbæ Reykjavíkur ásamt Sölku, fimm ára, og Sindra, þrettán ára – að ógleymdum heimilishundinum Bjarti.
Íslenskur arkitektúr í Noregi
Arkitektinn Guðmundur Jónsson hannaði sérstakt og glæsilegt sumarhús í Noregi. Það er ílangt með miklum gluggum og segir Guðmundur að það henti jafnvel á Íslandi og í Noregi.
Andi Reykjavíkur
Hjörleifur Stefánsson arkitekt gaf í fyrra út bókina Andi Reykjavíkur. Þar skoðar hann meðal annars hvers vegna við höfum ekki borið gæfu til að umgangast miðbæinn sem skyldi. Við birtum nokkra valda kafla úr bókinni.
ANNAÐ
- HITT + ÞETTA
- SPURT OG SVARAÐ
- FLOTT & FUNDIÐ
- MYDECO.COM
- HLUTIRNIR MÍNIR
- ALEJANDRO ARVENA
- ÁSKRIFENDATILBOÐ
- HÖNNUNARSAGAN
- UPPÁHALDSHÚSIÐ

