Útgáfa
NÝTT, STÆRRA BETRA MANNLÍF!
Hið nýja Mannlíf er ólíkt því Mannlífi sem kom út á síðasta ári og mun koma út fjórum sinnum á þessu ári. Blaðið stækkar og blaðsíðum fjölgar.
Efnið er léttara og fjölbreyttara en verið hefur. Mannlífsviðtalið er á sínum stað auk þess sem fjallað er um tísku, tæki, menningu og mannlífið á breiðum grunni. Þá eru innlendar og erlendar fréttaskýringar í blaðinu og fjölmargt annað.
Meðal efnis í þessu nýja tölublaði er:
Lúxus íslensku útrásarvíkinganna
Mennirnir sem fóru fyrir íslensku útrásinni bárust mikið á þegar allt lék í lyndi. Nú er öldin önnur og auður þeirra hefur minnkað mjög. Eftir stendur þó saga fádæma munaðar manna sem þurftu ekki að tvítelja hverja krónu. Mannlíf skoðar eyðsluæði útrásarvíkinganna.
Hitt - Félög Magnúsar Skarphéðinssonar og bókin sem Einar Kárason hefði helst viljað skrifa.
Mannlífið - Lífið skiptist milli alþýðlegra atburða og fínna, tærrar snilldar og heldur klénni atburða. Mannlíf finnur hverju efni sinn stað.
Stjörnulögmennirnir - Hvers er best að leita til þegar vanda ber að höndum? Stjörnulögmennirnir og sérsviðin þeirra.
Tíska - Hverju á að klæðast og hvernig er best að bæta útlitið? Plús heitasta baðfatatískan.
Dótið - Tækni og græjur sem vert er að eignast.
Afríka - Heiða Helgadóttir fór til Eþíópíu og hitti fólk af ættbálkum sem halda nánum tengslum við náttúruna og gamlar hefðir.
Paris - Menn deila um hæfileikana en engum vafa er undirorpið að fáum er jafnleikið að fanga og nýta sér athygli fjölmiðlanna og Paris Hilton.
Framtíð Íslands - Hermundur Rósinkranz Sigurðsson hefur spáð fyrir um óvænta atburði síðustu missera. Nú spáir hann um hvað gerist næst.
Valdaflokkur í vanda - Sjálfstæðisflokkurinn verður að byggja sig upp eftir hrunið. Flokkurinn sem var við völd í átján ár þarf að gera upp fortíðina og byggja upp til framtíðar.
Eru Norðmenn fyndnir? - Hafnarfjarðarbrandararnir lifa góðu lífi meðal Norðmanna, sem snúa þeim reyndar upp á Svía. En geta Íslendingar hlegið að norskum bröndurum?
Leikhúsið - Jón Viðar Jónsson hefur ákveðnar skoðanir á nýrri uppsetningu á leikriti Friedrichs Dürrenmatt.
Kvikmyndir - J.J. Abrams er einhver áhugaverðasti maðurinn í kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu samtímans.
Drykkir - Vinsælasti bjórinn selst í nægilega miklu magni til að fara langleiðina með að fylla Laugardalslaugina.
Draumabíllinn - Sportbíll eða fjölskyldubíll? Porsche Panamera á að sameina kosti beggja. Allavega er ljóst að hann er hreinn draumur.
Pistillinn - Kanasjónvarpið lifir enn góðu lífi í minningum Eiríks Jónssonar.
Lífshlaupið - Diddú hefur lifað áhugaverðu lífi.
Póstkort frá London - Helga Arnardóttir lýsir helstu kostunum við London.
Lokasvar - Robert Wade á síðasta orðið og hefur nóg að segja.

