Útgáfa
Íslensk heimili
Á meðal efnis í nýjasta tölublaði Húsa og híbýla eru íslensk heimili í hnotskurn, sumarhús í vorgallanum og best hannaða hús Íslands. Þá voru safnaðar saman nokkrar myndir frá HönnunarMars til að leyfa lesendum blaðsins að fá nasaþefinn af því sem fyrir augu bar.
HönnunarMars - Síðustu helgina í mars var í fyrsta skipti haldin hátíðin HönnunarMars en áætlað er að hún verði árlegur viðburður héðan í frá. Sérstök áhersla var lögð á að bærinn lifnaði við og að hönnun væri við hvert fótmál.
Listakonan Fríða Kristín Gísladóttir - Fríða býr í fagurbláu húsi sem stendur á hornlóð í Garðabæ. Fríða og eiginmaður hennar eru miklir fagurkerar en fallega hluti má finna um allt hús. Við heimsóttum Fríðu í fallegu vetrarveðri sem angaði af vori.
Fallegur bústaður í sveitinni - Auður Árnadóttir blómaskreytingameistari á gullfallegan heilsársbústað sem fær hjörtu allra náttúruunnenda til að slá hraðar.
Samfylkingarkonan Sigríður Ingibjörg Ingadóttir - Sigríður Ingibjörg Ingadóttir kom óvænt fram á pólitíska sjónarsviðið þegar hún lenti í fjórða sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar. Hún býr, ásamt eiginmanni sínum og fjórum börnum, í 90 m2 íbúð á Ljósvallagötunni.
Tónlist og tíska í Hlíðunum - Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir, einn eigenda verslunarinnar KVK, býr í lítilli og sætri risíbúð í Hlíðunum, ásamt eiginmanni sínum, Daníel Þorsteinssyni, og tveimur börnum sem eru fimm og níu ára.
Verðlaunaskólinn í Borgarnesi - Arkitektarnir Ásmundur Hrafn Sturluson og Steinþór Kári Kárason hjá arkitektastofunni Kurtogpí hlutu nýlega Menningarverðlaun DV í flokki byggingarlistar fyrir hönnun Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi.
HITT + ÞETTA / SPURT OG SVARAÐ / JOUIN MANKU / HLUTIRNIR MÍNIR / ÁSKRIFENDATILBOÐ / HÖNNUNARSAGAN / UPPÁHALDSHÚSIÐ

