Útgáfa
60+ uppskriftir fyrir kjúkling og fisk!
Út er komið 5. tölublað Gestgjafans þar sem við tökum fyrir bæði kjúkling og fisk. Kokkarnir okkar fóru á heimshornaflakk með kjúklinginn og fiskurinn var settur í ýmsan búning, allt frá hefðbundnum og venjulegum réttum til hugmyndaríkra og skemmtilegra afbrigða við það sem við þekkjum. Ýmsar útgáfur af ýsuréttum og humarsúpugerð í máli og myndum er dæmi um það hvernig þetta tölublað mun nýtast lesendum, hvort sem þeir eru byrjendur í matargerð eða lengra komnir. Föstu þættirnir eru síðan allir á sínum stað þar sem blaðamenn Gestgjafans fara á kostum.
Árstíðin á markaðnum / Púrrulaukur eða blaðlaukur?
Fiskidagurinn mikli á Dalvík / Sirrý brá sér norður síðastliðið sumar og upplifði stemninguna á Dalvík.
Ýsa var það heillin ... / Kjartan Ólafsson, annar af veitingahúsarýnunum okkar, gerir hér tilraunir með ýsu og útkoman eru fimm glæsilegir réttir úr þessu vinsæla hráefni.
Óskalög sjómanna / Léttsveit Jóhönnu Þórhallsdóttur kom saman og eldaði nokkra girnilega fiskrétti úr smiðju söngkvennanna sjálfra.
Ofnréttir / Úlli lagaði nokkra ofnrétti, m.a. úr stórlúðu, laxi og rauðsprettu.
Food & Fun- matarhátíðin / Michael A. Ginor stóð fyrir glæsilegum kvöldverði í Þjóðleikhúskjallaranum, ásamt Sigga Hall, þar sem boðið var upp á fimm rétti eingöngu úr andalifur.
Sósurnar með fiskinum
Fiskbúðir
Þrep fyrir þrep / Úlli sýnir okkur hvernig á að laga fiskisoð og humarsoð
Kjúklingur á heimshornaflakki / Sirrý og Guðrún Hrund löguðu fjölbreytta rétti úr kjúklingabitum.
Kokkakeppni fjölmiðla í Turninum
Grænmetisrétturinn / Sirrý býður að þessu sinni upp á linsubauna-paté.
Sunnudagskakan / Súkkulaðiostakaka með valhnetum.
Búðaráp / Gerður fór á stúfana og fann allt sem þarf í kryddjurtaræktun.
Eitt vín – einn réttur
Flora Mikula og Provence / Íslandsvinurinn, Flora Mikula, var hér á landi í tengslum við Food & Fun-keppnina og stjórnaði eldhúsinu á Einari Ben.
Molar/Bix
Fiskfélagið / Lárus Gunnar Jónasson matreiðslumaður hefur stofnað nýjan matsölustað sem nefndur hefur verið Fiskfélagið og er staðsettur á Vesturgötu 2.
Te og kaffi 25 ára
Vínsíðurnar
Veitingahúsarýni / Kokkurinn og Kjartan fóru á veitingahúsið Gallery fiskur í Nethyl.

