Útgáfa

nl0904

Með tómarúm í hjartanu

22.4.2009

Tískudagbók

Ingveldur Ólafsdóttir faldi sig fyrir Guði þegar hún var lítil svo ekki sæist til hennar klæðast sunnudagakjólnum í miðri viku.

Litagleði ræður för á fótum

Svalir skór fyrir vorið.

Tískutromp í H&M

Matthew Williamson opnar dyr inn í ævintýraheim og Kate Moss sækir í gamalt og gott með hönnun sinni fyrir H&M.

Doppur

Þær detta aldrei úr tísku heldur koma og fara eins og vorboðinn ljúfi.

Á döfinni

Enn og aftur er komið að Listahátíð. Eins og áður verður ýmislegt áhugavert á seyði á götum borgarinnar og inni í vel byggðum húsunum. Íðilfagrir tónar, leikrænar listir og litríkar persónur eru það sem meðal annars prýðir hátíðina.

Njóttu

Endalaust koma út góðar bækur og plötur. Slökktu á sjónvarpinu og njóttu tóna og texta listamanna á borð við Bat for Lashes og Dalai Lama.

Seiðandi sumarmatur

Salsasúpa og salsasalat fá hvern sem er til að vilja stíga dans.

Innlit

Hvernig býr konan í converse-skónum? Við kíkjum í heimsókn til Katrínar Jakobsdóttur og fjölskyldu.

„Þetta var ógeðslega fyndið“

Ólafía Hrönn var í sleipri brók í leikfimi og missti niður um sig buxurnar.

Sagði nei við Playboy

Jóhanna Guðrún hefur engan áhuga á að sitja fyrir nakin. Hún glímir við gigt og sjálfsofnæmi en lætur það ekki stoppa sig og æfir af fullum krafti fyrir Evróvisjónkeppnina í Moskvu.

Naflaskoðun veldur þunglyndi

Selmu Björnsdóttur finnst algjör óþarfi að skilgreina sig í þaula og finnst lífið oft mega vera einfaldara en það er. Hún missti trúna tuttugu og eins árs og hefur síðan reynt að fylla upp í tómarúm hjartans. Börnin hafa kennt henni hvað skiptir máli og fátækt foreldranna var henni hvatning.

Fullnægður eftir Jerry Hall  

Glamúrgæinn Karl Berndsen þurfti að sanna karlmennsku sína fyrir föður sínum með því að drepa gæs fimm ára gamall. Hann roðnaði niður í rass þegar hann svo hitti fyrirsætuna Kate Moss og átti að sjá um „varirnar“ á henni.

Hann hræðir mig ekki lengur

Stígamótastrákar segja frá óhugnanlegri reynslu sinni sem saklaus börn og hvernig þeir náðu tökum á eigin lífi með hjálp Stígamóta.

Þegar Tom Cruise og Brad Pitt sváfu saman

Tom Cruise og Brad Pitt léku vampírur sem áttu í ástarsambandi. Forboðinn losti og löngun í eitthvað sem ekki má er undirstaða sagna um vampírur og aðrar vættir sem nærast á blóði.

Norrænir tískuvíkingar

Samstarf á milli norrænna þjóða fer ört vaxandi og ekki vantar sköpunarkraftinn hjá fatahönnuðum.

Ísland er land þitt

Nokkrir heitustu fatahönnuðir landsins fá að njóta sín í litríkum og skemmtilegum tískuþætti.

Uppáhaldssnyrtivörur okkar

Unaðslegt freyðibað með grænu tei og ilmandi kókosolía koma líkama og sál í jafnvægi. Nýtt Líf valdi nokkrar uppáhaldsvörur til að létta þér lífið.

Vorið í snyrtivörum

Náttúrulega konan mætir hinni dularfullu og sjálfsöruggu. Dásamlegar snyrtivörur fyrir dag- og kvöldförðun. Fyrir þig.

Tíu atriði

Margrét Erla Maack borðar malbik, sand og flugur þegar hún túrar um á vespunni sinni og þykir nauðsynlegt að næra hárið með hunangi til að komast í gegnum mánuðinn.

Gerum við ráð fyrir auðveldu lífi?

Dóra Guðrún Guðmundsdóttir las það einu sinni að enginn hefði lofað því að lífið yrði auðvelt og hafði sú setning mjög sterk áhrif á hana. Þegar við sættum okkur við það að lífið sé stútfullt af vandamálum þá fyrst verðum við hamingjusöm.

Konur mega eiga frumkvæðið

Jóhann Jökull kennir konum að krækja sér í eftirsótta piparsveina. Bros virkar betur en allt.

Partí

Mikið var um manninn á Norræna tískutvíæringnum sem haldinn var 19. mars til 5. apríl. Fólk klæddist sínu fínasta pússi til að sýna sig og sjá aðra.

Stjörnuspá

Leynilegt ástarævintýri gæti látið á sér kræla hjá Nautinu og Steingeitin nýtur góðs tíma með fjölskyldu sinni. En Krabbinn leitar að vinnu.

Skóli lífsins

Arnar Jónsson hefur lært það af lífinu að hrokinn, þessi skaðræðisskepna, fellir menn og þjóðir.

SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ!



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.