Útgáfa

hh0906

Vorverkin

30.4.2009

Allt um vorverkin, 25 góð ráð, allt um grindverkin og hlutir sem hjálpa. Þá rata flottar vörur undir 4.000 krónum, barnaherbergi og veitingastaðir á síður þessa nýjasta tölublaðs Húsa og híbýla. Við skoðum flott hús í Hafnarfirði sem hönnuður gerði að sínu, leikkonuna í gula húsinu og gluggum inná Ragnar Kjartansson í Feneyjum.

Nýtt hús í nýju hverfi ::: Eva Jóhannsdóttir býr ásamt manni sínum og tveimur dætrum í fallegu húsi í Ásahverfinu, einu af nýjustu hverfum Hafnarfjarðar. Fjallaútsýnið er ómetanlegt sem og fallegar gönguleiðir hverfisins. Húsfreyjan þurrþæfir ull og hannar ýmsa fallega gripi af miklum myndugleik.

Leikkonan í gula húsinu ::: Ragnheiður Steindórsdóttir leikkona er bæjarlistamaður Seltjarnarness þetta árið. Hún býr ásamt eiginmanni sínum, Jóni Þórissyni, og 18 ára dóttur sinni, Margréti, í raðhúsi á Seltjarnarnesi.

Notar náttúruna í verkin ::: Katla Jónasdóttir listamaður málar náttúruleg málverk í orðsins fyllstu merkingu. Hús og híbýli kíktu í heimsókn til Kötlu sem býr í gömlu og glæsilegu húsi í miðborg Reykjavíkur ásamt syni sínum, Lúkasi Kevin Stanford.

Vorverkin ::: Hvernig girðingu er best að setja upp í kringum garðinn eða ætti það kannski að vera grindverk? Þetta er meðal þeirra spurninga sem við leitumst við að svara í umfjöllun um vorverkin í garðinum sem margir huga að þessa dagana. Einnig gefum við fjöldann allan af góðum ráðum, kíkjum eftir góðum hlutum sem gætu hjálpað og setjum upp dagatal fyrir garðinn.

Ragnar í Feneyjum :::

Það verður spennandi að sjá hvernig Ragnari Kjartanssyni tekst upp með sýningu sína í Feneyjum. Hann tekur þar þátt í Myndlistartvíæringnum fyrir Íslands hönd. Við fengum forsmekkinn af verki Ragnars og litum einnig yfir fyrri þátttakendur Íslendinga á þessari virtustu myndlistarsýningu heims.

::: HITT + ÞETTA ::: SPURT OG SVARAÐ ::: FLOTT UNDIR 4.000 KRÓNUM ::: ÓMISSANDI BÆKUR :::

::: ALEXANDER GIRARD ::: BARNAHERBERGI ::: VEITINGASTAÐIR ::: ÁSKRIFENDATILBOÐ :::

::: HÖNNUNARSAGAN ::: UPPÁHALDSHÚSIÐ :::

SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.