Útgáfa
Grillblaðið er komið!
Grilltíminn er nú runninn upp með stútfullu Gestgjafablaði af hugmyndum. Edda Heiðrún Backman listakona og -kokkur bauð til glæsilegrar veislu og við fengum að fylgjast með henni og lesendur fá að sjá hvað hún bauð nokkrum leikkonum og sælkerum upp á.
Við sýnum í máli og myndum hvernig heitreyking á grilli fer fram, grillum alls konar fisk sem hefur legið í mismunandi kryddlegi, gefum uppskriftir að meðlæti, sósum, ávaxtasalötum, brauði sem bakað er á grilli og að stórsteikum. Allt þetta er meðal þess er að finna í grillblaði Gestgjafans.
Árstíðin á markaðnum / Dominique fjallar um kúrbítinn.
Öll veröldin er leiksvið / Nokkrar leikkonur og vinonur Eddu Heiðrúnar Backman komu saman eina kvöldstund á heimili hennar og nutu frábærra veitinga.
Nautakjöt / Úlfar grillaði alvörustórsteikur.
Meðlæti með grillmatnum
Ávaxtaeftirréttir / Sirrý útbjó ferska og flotta eftirrétti sem er tilvalið að bjóða upp á eftir grillmáltíðina.
Grillráð
Þrep fyrir þrep / Úlli sýnir hér hvernig við getum heitreykt á grillinu.
Fiskur – það heitasta á grillið í dag / Hver er galdurinn við að grilla fisk? Úlli segir frá því og gefur uppskriftir að nokkrum fiskréttum.
Paprikur í matargerðina / Paprikutíminn nálgast og afhýddar paprikur eru ómótstæðilega sætar og góðar. Sirrý segir frá því hvernig það er gert og lagaði nokkra rétti þar sem paprikan er í aðalhlutverki.
Hrossakjöt er lostæti á grillið
Gómsætt án sykurs
Búðaráp / Hrefna Arnardóttir fór í búðir og fann ýmislegt fyrir grillara.
Grænmetisrétturinn / Grillað tofu með snöggsteiktu grænmeti.
Sunnudagskakan
Eitt vín einn réttur / Óli Gísli á Basil og Lime eldaði ekta osso buco.
Veitingahúsarýni / Kokkurinn og Kjartan fóru á nýopnaðan veitingastað, Dill, sem er í Norræna húsinu.
Fiskur til framtíðar
SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ!

