Útgáfa
Ferðast um Ísland
30 frábærar nestishugmyndir finnur þú í skemmtilegu og sumarlegu tölublað er komið í verslanir! Góðar hugmyndir að sumarlegum og matarmiklum salötum, grillkolakönnun og upprennandi kokkar í Hólabrekkuskóla eru meðal efnis. Þá eru heimsins bestu samlokur og gómsætar súpur.
Árstíðin á markaðnum - Dominique fjallar um sveitamarkaði á Íslandi.
Ferðast um landið í eldhúsi Úlla - Úlli bauð erlendum matreiðslumeisturum, sem voru hér á landi í tilefni keppninnar Matreiðslumeistari Norðurlanda, í veislu og var þemað íslenskt og heimaræktað.
Nestið í ferðalagið - Njótum sumarsins og borðum úti í náttúrunni. Maturinn bragðast oft mun betur þannig.
Matarmikil salöt - Sirrý útbjó girnileg og matarmikil salöt sem er bæði fljótlegt og einfalt að útbúa.
Gautaborg fyrir bragðlaukana - Karl Petersson, ljósmyndari blaðsins, var nýlega í heimalandi sínu, Svíþjóð, og var ekki lengi að sannfæra okkur um að Gautaborg er borg fyrir sælkera!
Súpur á ferðalagi - Hér koma nokkrar tillögur að súpum sem hægt er að setja á hitabrúsa og halda heitum eða köldum þar til komið er á áfangastað.
Gómsætt án sykurs - Hanna fór í lautarferð með hollan og girnilegan mat.
Þrep fyrir þrep - Úlli sýnir hér hvernig á að útbúa sína eigin klakaskál sem er t.d. tilvalin undir ís og krapís.
Matreiðslukeppnir - Matreiðslumaður ársins, Matreiðslumaður Norðurlanda og Vínþjónn ársins voru valdir á sýningunni Frístundir og ferðalög í Laugardalshöllinni nýlega en þar var einnig Landshlutakeppni í matreiðslu.
Ferðast um Ísland - Við bendum hér á nokkra afþreyingamöguleika og vefsíður sem auðvelda valið um hvert skuli halda og hvað skuli gera í sumarfríinu innanlands.
Grænmetisrétturinn - Spínatrúllur með osti er fljótlegur og freistandi réttur sem Sirrý lagaði.
Könnun á viðarkolum
Sunnudagskakan - Súkkulaðikaka í ofnskúffu sem hentar vel í ferðalagið.
Búðaráp - Hrefna tíndi til ýmislegt sem sniðugt er að hafa með í lautarferðina.
Eitt vín - einn réttur - Jóhannes Steinn Jóhannesson á Vox, sem var valinn matreiðslumaður ársins 2009, býður upp á hægeldaðan uxahala og Ribera del Duero-vín.
Molar/Bix
Vínsíðurnar
Veitingahúsarýni - Kokkurinn og Kjartan fóru í Perluna.
Matreiðslukeppni í Hólabrekkuskóla - Fylgst með spennandi keppni nemenda í 9. og 10. bekk Hólabrekkuskóla.

