Útgáfa

ml0902

Forsetanum hótað!

28.5.2009

gaddakGlæpasmásögubókin 13 krimmar fylgir Mannlífi að þessu sinni.

Sneisafullt blað af áhugaverðu og skemmtilegu efni. "Þetta er viss sjúkdómur ..." segir Ólafur Ragnar Grímsson forseti, sem rekur hrunið að hluta til flokksræðis. Forystumenn flokkanna beittu "drottnunarvaldi" sínu til að skipa dygga flokksmenn " miskunnarlaust" í stöður á kostnað hinna hæfari

 

 

Hræddur í París

Nöfnin Kristján Ólafsson og Ragnar Reykás koma fljótt upp í hugann þegar leikarinn Sigurður Sigurjónsson kemur til tals eða birtist á skjánum. Allir Íslendingar þekkja hann. En hver er þessi spaugsami Hafnfirðingur? Í viðtali við Mannlíf segist Sigurður vera hæglátur og heimakær og hann sé allt að því óframfærinn. En hann hefur þrátt fyrir það vissar skoðanir á þjóðfélaginu og því pólitíska kerfi sem við búum við. Og líklega hafa ekki margir heyrt söguna af því þegar Sigurður ætlaði sér að læra látbragðsleik í París en hætti við því hann varð hreinlega hræddur þegar hann var allt í einu einn í stórborginni.

Herra forseti

Bankahrunið lagðist þungt á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands. Hann óttaðist að friðurinn væri úti þegar komið var fram í desember í vetur og sagði við Geir Haarde, þegar hann baðst lausnar sem forsætisráðherra, að ef ófriðurinn héldi áfram að magnast mundi litlu skipta hvað gerðist í stjórnkerfinu. Ólafur Ragnar er sannfærður um að ein af ástæðum hrunsins sé áratuga þróun klíkustjórnmála og flokksræðis með tilheyrandi pólitískum embættisveitingum. Mikilsvert sé að forsetinn bogni ekki undan hótunum stjórnarherra eða þegar fjölmiðlar hjóli í hann því þá öðlist þeir neitunarvald yfir honum.

Annað efni

Hitt og þetta Félögin hans Stefáns Pálssonar, brandarar Hugleiks Dagssonar og örviðtalið við Guðrúnu Halldórsdóttur.

Mannlífið Lífið skiptist milli alþýðlegra atburða og fínna, tærrar snilldar og heldur klénni atburða. Mannlíf finnur hverju efni sinn stað.

Álitsgjafarnir Til hverra leita fjölmiðlarnir þegar þeir vilja fá álit á ákveðnum hlutum eða fyrirbærum?

Tíska Hverju á að klæðast og hvernig er best að bæta útlitið?

Tækni Nýjasta tæknin og græjur sem er vert að eignast.

Síðast átu þeir gullið Munaðurinn sem bankarnir veittu útvöldum viðskiptavinum átti sér fá ef nokkur takmörk. Það sannaðist þegar boðið var upp á gull í einum réttinum í boðsferð Landsbankans til Ítalíu.

Lífið á Miðnesheiði Gamla varnarsvæðið á Keflavíkurflugvelli iðar allt af nýsköpun og lífi á nýjan leik. Menntun og bjartsýni eru oftar en ekki orð sem koma upp í umræðunni þegar gamli beisinn kemur til tals.

Trú fræga fólksins Vísindakirkjan hefur heillað marga stjörnuna. Mannlíf skoðar hvað býr að baki.

Miðlar og verndarenglar Heiðar Jónsson þakkar „skrýtinni ömmu“ að hann fékk að þróa með sér hæfileikann til að heyra raddir framliðinna. Ragnheiður Ólafsdóttir, árulesari og teiknimiðill, segir fólk verða að læra að tala við verndarengla sína.

Glæpir Jón Þór Grímsson er einn þeirra sem hafa verið inn og út úr fangelsi stóran hluta ævi sinnar. Hann segir sögu sína í Mannlífi sem kannar hvers vegna sumir lenda í hópi þeirra sem dagsdaglega eru nefndir síbrotamenn.

Kjarnorkuváin Ótti fólks við dauðann var oft á tíðum mikill á tímum kalda stríðsins og kjarnorkuógnar. Kjarnorkubyrgi og birgðasafnanir koma við sögu hjá þeim sem rifja þennan tíma upp í samtali við Mannlíf.

Gaddakylfan Spennusmásagnakeppni Mannlífs og Hins íslenska glæpafélags vakti mikla athygli. Smásagnabókin Krimmar fylgir Mannlífi að þessu sinni og eru höfundar sem eiga sögu í bókinni eftirfarandi:

  • Ingvi Þór Kormáksson
  • Halldór E.
  • Edda Jóhannsdóttir
  • Sigurgeir Jónsson
  • Haraldur Sigþórsson
  • Helgi Ingólfsson
  • Lýður Árnason
  • Kristinn Ingvason 
  • Íris Ingjaldsdóttir
  • Halldór Ólafsson
  • Ævar Rafn Björnsson

 

Kvikmyndir Christian Bale hefur verið kallaður alvarlegasti leikarinn í Hollywood. Hann er í aðalhlutverki í nýja þríleiknum um tortímandann.

Bílar Mitsubishi Lancer er fjölskyldubíll með sportlegu yfirbragði.

Pistillinn Eiríkur Jónsson skrifar um vinstri-græna kónga og barnaheimili í Kaupmannahöfn.

Lífshlaupið Sirrí á að baki 23 ára feril í fjölmiðlum.

Póstkortið Stefán Jón Hafstein sendir póstkort frá Lílongve, höfuðborg Malaví.

Lokasvar Gunnar Eyjólfsson leikari hefur upplifað margt og lært enn meira. Hann á lokaorðið í Mannlífi að þessu sinni.

SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ!

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.