Útgáfa
Í kapphlaupi við tímann
Hulda Hlín Sigurðardóttir er 33 ára þriggja barna móðir sem haldin er MS-sjúkdómnum. Hann leggst á taugafrumur miðtaugakerfisins og veldur m.a. hreyfihömlun. Í kapphlaupi við tímann berst hún fyrir því að fá lyfið Tysabri sem getur mögulega skapað henni nýtt líf. Huldu er þó sífellt neitað um lyfjameðferð með þeim rökum að slík meðferð sé of kostnaðarsöm fyrir kerfið þar sem hún sé ekki nægilega veik. Hún óttast að verða fyrir enn meiri skaða og geta ekki verið til staðar fyrir fjölskyldu sína og langveika dóttur.
Viðtöl
- Bjartur Guðjónsson taktkjaftur var tekinn í yfirheyrslu.
- Úrræði við átröskunum. Vikan spjallaði við geðhjúkrunarfræðing og einkaþjálfara, sem þjáðst hefur af átröskun, um starfið hjá Prismusetrinu.
- Brynja Rut Vilhjálmsdóttir gefur upp fegurðarleyndarmálin sín.
- Matgæðingur Vikunnar að þessu sinni gefur uppskrift að girnilegu sumarsalati.
Greinar
- Fallegt sumarhár. Sól og sundlaugarklór getur farið illa með hár en Vikan veit um leiðir til að vernda lokkaflóðið fyrir skaðlegum áhrifum sumargleðinnar.
- „Viltu býtta?“ Fólk safnar ótrúlegustu hlutum og við rifjuðum upp nokkra eftirminnilega.
- Garðyrkja án eiturs. Blaðamaður Vikunnar leitaði sér upplýsinga um vistvænar aðferðir við garðyrkju.
- Sætar og hollar veitingar – fyrir sólríka sumardaga, eða bara hvenær sem er. Solla kemur með góðar hugmyndir.
- Gerum garðinn skemmtilegri. Það er vel þess virði að leggja dálítið á sig til þess að gera garðinn sinn skemmtilegri. Það er gaman að nota garðinn og öll fjölskyldan gæti lumað á hugmyndum til að bæta og kæta.
- Litrófskúrinn. Grænmeti og ávextir sjá okkur fyrir mikilvægum vítamínum og steinefnum og litur þeirra gæti verið lykillinn að heilbrigði og góðum lífslíkum, samkvæmt næringarfræðingnum Fionu Kirk.
- Mamma, má ég eiga hann? Flest börn eru hrifin af dýrum en ekki allir foreldrar. Ef gæludýr er tekið inn á heimilið borgar sig að vanda valið.
Matur
- Krabbasalat og Ofnbakaður fiskur með jarðarberja- agúrskusalati og sítrussósu.
- Sætindi án samviskubits! Uppskriftir að súkkulaðibananaíspinnum og sítrónuíspinnum. Einnig að einföldum kókosbananaís.
- Sumarsalat og súkkulaði-hnetukaka.
Tíska – tískuþáttur Haffa Haff á fjórum síðum
Fastir þættir
- Dagskráin
- Vikan mælir með
- Fræga fólkið
- Danski kúrinn
- Kitschfríður
- Lífsreynslusaga
- Krossgáta
- Sudoku og orðaleit
- Stjörnuspá og Galdrahornið
- Veröld Vikunnar

