Útgáfa
60+ hugmyndir í garðveisluna
Nú er komið að frábærum hugmyndum í garðveisluna!
Girnilegar uppskriftir að grilluðum pinnamat og svalandi drykkjum, villtar borðskreytingar og ódýru sumarvínin er meðal þess sem við skoðum. Þá héldu listanemar og listakokkar frábæra veislu á pallinum og Gestgjafinn kíkti í heimsókn. Svellkaldur sumarís er vel viðeigandi þessa dagana í íslensku sumarblíðunni og að sjálfsögðu sýnum við nokkrar ljúffengar útgáfur.
Árstíðin á markaðnum / Dominique fjallar um kirsuber.
Matargerð – eins og að mála málverk / Bjarki Sólmundarson er ekki bara útlærður kokkur heldur er hann á leið í nám í Listaháskóla Íslands. Hann bauð nokkrum vinum sínum í flotta grillveislu.
Fíflar eru flottir / Úlli kennir okkur hvernig hægt er að nýta fífla í matargerð og m.a. búa til fíflavín.
Svellkaldur í sumarhitanum / Sirrý er mikill ísaðdáandi og kemur það glögglega í ljós í þessum þætti. Hundasúruís er á meðal þess sem hún gerði.
Borðskraut og blómakreytingar / Hanna notar, ásamt fleiru, niðursuðudósir til að skreyta sumarborðið og útkoman er stórglæsileg!
Gómsætt án sykurs
Ljúf garðveisla / Við settum upp notalega garðveislu þar sem boðið var upp á nokkrar gerðir af grillpinnum og svalandi sumardrykki í fallegu umhverfi.
Grænmetisrétturinn / Sirrý lagaði spannakopita eða spínatböku sem er uppruninn frá Grikklandi.
Sunnudagskakan / Sumarleg og fersk sítrónuostakaka.
Ferðast um Ísland / Við höldum áfram að benda á áhugaverða staði á Íslandi.
Búðaráp / Hanna Ingibjörg fann, á rölti sínu um bæinn, flotta hluti undir sumarísinn.
Allrahanda
Eitt vín - einn réttur / Snorri Birir Snorrason á Brauðbæ og Alsace-vínin.
Molar/Bix
Vínsíðurnar
Veitingahúsarýni / Kokkurinn og Kjartan fóru til Hafnarfjarðar og heimsóttu Tilveruna.

