Útgáfa
GARÐABLAÐIÐ
Það er gott að komast úr amstri hversdagsins og eru garðarnir þar oft auðveld og kærkomin leið. Vin í byggðinni. Hús & híbýli heimsótti 40 skemmtilega garða af ýmsu tagi, meðal annars matjurtagarða sem eiga mjög upp á pallborðið um þessar mundir.
Kennir Jóga í sólskálanum.
Margrét Benediktsdóttir og Guðni Finnsson búa ásamt börnum sínum í skemmtilegu húsi í Smáíbúðahverfinu. Þar svífur andi fjarlægra slóða yfir vötnum en í sólskálanum kennir Margrét nemendum sínum kundalini-jóga.
Paradís við vatnið
Glæsilegt hús í kanadískum stíl stendur við Elliðavatn. Þar býr þriggja manna fjölskylda og rottweiler-tíkin Tinna. Vatnið, fjöllin og náttúran er það sem blasir við þegar horft er út um gluggann.
Ævintýralegur Tord Boontje
Hönnun Tord Boontje hefur verið mjög áberandi undanfarin ár, en þar leikur náttúran stórt hlutverk. Ævintýraleg hönnun hans hefur sannarlega slegið í gegn og ljóst er að nútímaleg hönnun er ekki alltaf naumhyggjuleg.
ANNAÐ
::: HITT + ÞETTA
::: SPURT OG SVARAÐ
::: FLOTT UNDIR 7.000 KRÓNUM
::: ALVAR AALTO OG JAPAN
::: NÝJAR BÚÐIR
::: ÁSKRIFENDATILBOÐ
::: HÖNNUNARSAGAN
::: UPPÁHALDSHÚSIÐ

