Útgáfa

so08_09

SAGAN ÖLL

2.7.2009

Sagan Öll er á fleygiferð með fróðleik fyrir alla. Í 8. tölublaði er fjallað um Nelson flotaforingja og orrustuna við TRAFALGAR, Innrásina í Normandí, D-Daginn 1944, Marlene Dietrich, skærastu stjörnuna, fyrsta verkfall sögunnar, musterið Angkor Wat, sjö frægustu konur Rómar og heimspekinginn í tunnunni. Eitthvað fyrir alla fjölskylduna!

Bayeux-refillinn

70 metra langt veggtjald í bænum Bayeux sýnir sögulega atburði í myndum, en er líka uppfullt af slúðri og áróðri. Sagan öll leit á málið.

D-dagurinn

Bretar höfðu yfir að ráða stærsta innrásarliði sögunnar 6. júní 1944. Það innihélt m.a. 8 beitiskip, 22 varðskip, 93 tundurspilla, 4.000 landgöngupramma, 1.400 flutningaflugvélar, 640 svifflugvélar og 11.000 orrustu- og sprengjuflugvélar. Útkoman varð blóðug.

Trafalgar

„Við þurfum bara að hafa yfirráð yfir hafinu í sex tíma, þá getum við gereytt Englandi,“ fullyrti Napóleon fullur af sjálfsöryggi. En það reyndist hægara sagt en gert. Hvað gerðist þegar Nelson flotaforingi fagnaði sigri í síðasta sinn?

::: Þau fæddust í júní / Sókrates, Paul Gauguin, Che Guevara og Anastasia Rússlandsprinsessa.

::: Albúmið – svipmyndir úr sögunni / Verkfall í Egiftalandi til forna og heimspekingurinn í tunnunni.

::: Spurningar og svör/ Hvaðan koma sólgleraugun? Var Napóleon lítill í raun? Hvaðan kemur titillinn „keisari“?

::: Bayeux-refillinn / Forn myndasaga um orrustuna við Hastings.

::: Marlene Dietrich / Þýska leikkonan sem stóð með bandamönnum í stríðinu.

::: D-dagurinn / Ein óvæntasta og örlagaríkasta árás seinni heimsstyrjaldarinnar.

::: Hvernig merktu nasistar gyðinga og aðra minnihlutahópa á sínum tíma?

::: 7 röskar Rómardætur

::: Trafalgar / Mikilvægasti sigur Nelsons flotaforingja.

::: Angkor / Gimsteinn Khmeranna í frumskógum Kambódíu.

::: Getraunin

Fáðu tvö blöð á verði eins! Sagan Öll og Skakki Turninn!

 

SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ!



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.