Útgáfa

nl0907

Sér fegurðina í fötluninni

23.7.2009

Eftir ævintýralegan feril sem fatahönnuður kom Steinunn Sigurðardóttir til Íslands í þriggja mánaða fæðingarorlof. Í fæðingunni kom í ljós að sonurinn var alvarlega veikur og fjölfatlaður. Eftir sorgartímabil ákvað Steinunn að lifa lífinu til fulls og réð sig til gamalgróins ítalsks fyrirtækis, sem henni þótti frekar hallærislegt, Gucci, og byggði það upp með Tom Ford.

  • Já, ég er KONA! - Japanskur ljósmyndari í London, Yoshihiro Takeuchi, myndaði tískuþátt fyrir Nýtt Líf þar sem hann sameinar munúðarfullan þokka og styrk kvenna.
  • Risið upp úr hruninu - Í rústum hússins sem var eyðilagt á Álftanesi af fyrrum eiganda sínum tókum við tískuþátt. Súrrealískar aðstæður í þjóðfélaginu gefa okkur tækifæri til að sleppa hugarfluginu lausu og gera eitthvað nýtt og allt annað. Við þurfum að rísa upp úr rústunum.
  • Seiðandi sumardís - Sumarkjólar fyrir sérstök tækifæri og annar sumarlegur klæðnaður fyrir aðra daga. 
  • Skór árstíðarinnar - Sandalar í anda rómverskra riddara og grískra gyðja.
  • Fótsnyrting og dekur - Leiðbeiningar þar sem þér er sýnt skref fyrir skref hvernig þú getur snyrt fæturna sjálf heima. Þannig getur þú litið sem allra best út í sandölunum.
  • Kisulóra skartaðu þínu fegursta  - Skartgripir lífga upp á klæðnaðinn og breyta ásýndinni. 
  • Á döfinni - Tónlistarmenn bregða sér til Borgarfjarðar á Bræðsluna, Ljósmyndasafn Reykjavíkur sýnir íslenskar myndir frá sjöunda áratugnum og í Ásmundarsafni sýna nútímalistamenn með Ásmundi Sveinssyni.
  • Njóttu - Ásdís Rán les Internetið og Þórarinn Þórarinsson mælir með 79 af stöðinni, sem er enn ögrandi og kynþokkafull. Lena Viderø mælir aftur á móti með PJ Harvey og John Parish og Fever Ray.
  • Innblástur - Linda Dögg Ólafsdóttir býr í San Francisco þar sem hún útskrifaðist úr mastersnámi í myndskreytingum með hæstu einkunn. Hún útskýrir hvaðan hugmyndirnar koma.
  • Gómsætar núðlur - Kokkur á Núðluhúsinu kennir okkur að gera Padthai-núðlur með rækjum, sem er einfaldur, hollur og góður réttur. Uppskriftin er fyrir tvo þannig að þú getur boðið einhverjum með þér.  
  • Innlit - Sigmundur Ernir Rúnarsson og Elín Sveinsdóttir eiga stóra fjölskyldu og muni frá öllum heimshornum. 
  • Hulda Hákon situr fyrir svörum - Hún er stórbrotinn listamaður sem hefur skemmtilega sýn á lífið og listina. Í æsku hélt hún að hún myndi aldrei hætta að vaxa, en svo kynntist hún eiginmanninum sem fannst flott að hún væri hávaxin. Hæðin hjálpaði henni líka til stórræða í hástökki.
  • Hljóp sig í gegnum krabbamein - Unnur Stefánsdóttir fékk krabbamein í brisið og eftir skurðinn náði hún upp fyrri þyngd og þreki með íþróttaiðkun samhliða lyfja- og geislameðferð.
  • Konan í hlutverki hórunnar - Út um allan heim kaupa karlar kynlífsþjónustu kvenna. En hvað er verið að selja? Af hverju? Þetta og hugmyndin um tvöfalt siðgæði kvenna og rétt karla til þess að kaupa kynlíf.
  • Lisbeth Salander og Lína Langsokkur - Lisbeth Salander er aðalpersónan í sögum Stieg Larssons. Hún er líka tvíkynhneigður, andfélagslegur goth-pönkari. Og á margt sameiginlegt með Línu Langsokk.   
  • Systur og systralag - Systur taka saman þátt í samfélaginu og systralag er eitthvað ómetanlegt á milli systra eða vinkvenna. Við ræddum þetta við systurnar Hrafnhildi og Báru, Sigrúnu Eddu og Ragnheiði Helen og Katrínu Öldu og Rebekku.
  • Gefðu lífinu lit - Sumarið er tíminn til þess að leika sér með litríkar förðunarvörur.
  • 10 atriði - Margrét Gauja Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, kæmist ekki í gegnum mánuðinn án þess að stofna nýtt félag eða fara á stefnumót með manninum sínum.
  • Fegurð fjalla í nærsýn - Fátt nærir sálina betur en vel heppnuð ganga í íslenskri náttúru. Það þarf þó að huga að ýmsu áður en lagt er af stað.
  • Hamingja og hælsæri á Hornströndum - Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir hélt í fimm daga ferð á Hornstrandir og gekk ásamt hópi fólks sem hún þekkti lítið sem ekkert. Allt til þess að fá frið og ró í óbyggðum, fjarri skarkala og símasambandi.
  • Einn og berskjaldaður á fjölskylduskemmtun - Piparsveinninn lætur hugann reika á fjölskylduskemmtun. Í huganum velur hann flottustu einhleypu mömmuna, sem er reyndar svipt titlinum ansi fljótt þegar eiginmaðurinn birtist.
  • Kex eða kynlíf - Merktu kynlíf inn á dagatalið og borðaðu sellerí. Það getur virkað örvandi fyrir kynhvötina, sem við reynum að kryfja og komast að því af hverju sumir hafa einfaldlega meiri löngun en aðrir.
  • Skóli lífsins - Með hjálp Jesú Krists slapp Gylfi Ægisson lifandi úr vítahring óreglunnar og lærði það af stríðinu við Bakkus konung hversu sorglegt það er að rústa góðri heilsu með víni. 
  • Stjörnuspá

 

SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.