Útgáfa

hh0910

SVEITARÓMANTÍK

23.7.2009

Sumarið er tíminn til að fara út á land og kynna sér nýja staði. Við renndum norður á Hofsós og austur á Stokkseyri og Eyrarbakka og lentum í sannkölluðum ævintýrum. Kíktum á gistiheimili, laugar, söfn og fleira og var hvarvetna tekið með miklum virktum.

Afrísk áhrif á Grettisgötu

Á heimili Sigrúnar Þorsteinsdóttur og Jóhannesar Erlingssonar má finna muni frá framandi löndum eins og Kenýa, Úganda og Rúanda og auk þess kryddeyjunni Zanzibar. Sigrúnu kannast margir við af vefsíðunni cafesigrun.com þar sem hún miðlar hollum uppskriftum.

Nýbygging í gamla Kópavogi

Hjónin Kristín Anna Hermannsdóttir flugfreyja og Jónas Gunnarsson flugmaður byggðu framtíðarheimilið í nýju hverfi sem í rauninni tilheyrir einum elsta hluta Kópavogs, Vesturbænum. Þau fengu lóðina árið 2006.

 

Lífið í appelsínugula húsinu

Daði Guðbjörnsson listmálari og Soffía Þorsteinsdóttir leikskólastjóri búa í einstaklega reisulegu húsi sem fer ekki fram hjá neinum – því það er appelsínugult á litinn.

 

Haganlegt Hagakot

Í Hafnarfirðinum er að finna lítið, gamalt hús sem kúrir á milli nýrri og stærri bygginga. Margir kannast við það vegna veglegra jólaskreytinga. Þar búa Sverrir Júlíusson og Guðný María Gunnarsdóttir en Sverrir hefur tvisvar hlotið viðurkenningu frá Hafnarfjarðarbæ fyrir að hafa fallegt í kringum sig.

 

ANNAÐ

 

8 HITT + ÞETTA

12 SPURT OG SVARAÐ

14 FLOTT UNDIR 3.000 KRÓNUM

72 MARIMEKKO-ÆVINTÝRIÐ

76 FISKFÉLAGIÐ

78 ÁSKRIFENDATILBOÐ

80 HÖNNUNARSAGAN

82 UPPÁHALDSHÚSIÐ

 

SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ!

 



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.