Útgáfa
Sagan Öll og Skakki turninn, tvö tímarit á verði eins.
Dýr í stríði
Í gegnum tíðina hefur maðurinn þjálfað dýr til að hjálpa sér við hin ýmsu verkefni og störf og eru stríð þar að sjálfsögðu ekki undanskilin. Sum dýranna breyttu gangi sögunnar á meðan önnur, á borð við mörgæsina Nils Olav, hvöttu hermenn til dáða.
Ferðin til tunglsins
„Þetta er lítið skref fyrir mann en risastökk fyrir mannkynið,“ er líklega ein frægasta tilvitnun í heimi. Tunglferðin var bein afleiðing af kalda stríðinu á milli Sovétríkjanna og Bandaríkjanna og gekk hún ekki alls kostar vandræðalaust. Sagan öll skyggndist bak við tjöldin.
Jörundur hundadagakonungur
Það kannast vissulega flestir Íslendingar við nafnið, en staðreyndirnar um manninn og lífshlaup hans gætu verið farnar að rykfalla. Nú geta lesendur hresst upp á minnið.
v Það gerðist í júlí / Neðanjarðarlest tekin í notkun í París, Saddam Hussein verður forseti Íraks og Hundrað ára stríðið hefst.
v Albúmið – svipmyndir úr sögunni
v Kvensjúkdómalæknirinn Trotula, dvergvaxni listamaðurinn Toulouse-Lautrec og feitlagnar frjósemisgyðjur.
v Spurningar og svör / Hvenær var Rauði krossinn stofnaður og hverjir voru Etrúskar?
v Mannætur um veröld víða / Hvað er satt og hvað er logið?
v Hver var Hjörleifur, fóstbróðir Ingólfs Arnarsonar?
v 7 athyglisverðir rúnasteinar
v Karþagó / Afríska verslunarborgin sem lögð var í eyði af Rómverjum.
v Getraunin
Fáðu tvö blöð á verði eins! Sagan Öll og Skakki Turninn!

