Útgáfa

ge0910

Sumarfjör og Sæla

30.7.2009

Árstíðin á Íslandi / Dominique fjallar um kræklingaræktun í Hrísey. Fjörufjör / Hanna setti fjölskylduferð í fjöru á svið.

Kjúklingur í einum potti / Guðný Þórarinsdóttir hefur safnað kjúklingauppskriftum á ferðum sínum um heiminn og leyfði okkur að fylgjast með þegar hún eldaði réttina

Glóðbrauð / Sirrý og Hanna bjuggu til ótrúlega spennandi þátt með glóðuðu brauði eða svokölluðum „bruschettum“.

Múffur / Sætar og ósætar múffur höfða til allra aldurshópa. Sirrý gaf hugmyndafluginu lausan tauminn og útkoman varð frábær.

Súrur / Túnsúra, ólafssúra og hundasúra eru heiti á ókeypis hráefni sem Úlfar sýnir lesendum hvernig má nota í sælkerafæði.

Gómsætt án sykurs / Einfalt og gott er mottó Hönnu að þessu sinni í þessum fasta þætti sem nýtur mikilla vinsælda.

Katlar og könnur í nýju hlutverki / Hanna gefur hér frumlegar hugmyndir að því hvernig nota má óhefðbundin ílát undir blómin.

Ferðast um Ísland / Sirrý og Hanna fylgjast enn með því sem markvert er að sjá og gera á ferðlagi um landið og gefa ráð um það sem þær hafa sannreynt að er þess virði að skoða.

Leyndardómar kúrbítsins / Kúrbítur er nú ferskur á markaðnum og í þessum þætti má finna nytsöm ráð og hugmyndir að því hvernig best er að fara með hann.

Sunnudagskakan / Að þessu sinni er það jarðarberjakaka sem fær þann virðulega sess að vera kölluð sunnudagskaka.

Grænmetisrétturinn / Ratatouille heitir réttur sem margir kannast við úr kvikmyndinni sem ber sama nafn og er auðvitað um kokk.

Búðaráp

Eitt vín einn réttur / Dominique greip franskan kokk glóðvolgan þegar hún var stödd í heimalandinu fyrir stuttu.

Vínsíður

Veitingahúsarýni / Þeir félagar heimsóttu veitingahús á landsbyggðinni og kom margt á óvart.

Uppáhalds ... / Eiríkur Hauksson var beðinn um að svara spurningum okkar núna um ýmislegt sem er uppáhalds ...

SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.