Útgáfa
Yfir 100 framkvæmdarráð!
Hvernig er hægt að gera fasteignina söluvænlegri er spurning sem ekki er hægt að finna neitt eitt einfalt svar við. Frekar er hægt að tala um marga samverkandi þætti sem fara ýmist eftir fasteigninni og fólkinu sem kemur að viðskiptunum með hana. Við bendum því á nokkur einföld atriði til að hafa í huga. Köfum kannski ekki djúpt í efnið heldur hugsum frekar að við séum að ýta lesendum úr vör. Margir hugsa sér til hreyfings á næstu misserum eða árum og er því í mörgum tilvikum ekki seinna vænna en að fara að huga að undirbúningnum.
En jörðin hættir ekki að snúast þrátt fyrir kreppuna og fólk hættir ekki að halda heimili. Að þessu sinni kíktum við á þrjú gullfalleg heimili; á Akureyri, í Hafnarfirði og í Hlíðunum. Öll eiga þau það sameiginlegt að bera eigendunum fagurt vitni. Þar er vel hugað að smáatriðum og listaverkin í tugatali. Ekki skemmir þá fyrir að tvær listakonur eru meðal þeirra sem heimsóttir eru, Auður Skúladóttir á Akureyri og María Ólafsdóttir í Hafnarfirði. Kíkið endilega inn til þeirra og allra hinna.
Scintilla fyrir heimilið
Linda Björg Árnadóttir hefur fyrir löngu skapað sér nafn í tískuheiminum, bæði hér heima og erlendis. Undanfarin ár hefur hún stýrt fatahönnunardeild Listaháskóla Íslands með góðum árangri. Nú hefur hún snúið sér að spennandi verkefni sem snýr að annars konar tískubransa en hún er vön heimilisvörum.
Hvernig má gera fasteignina söluvænlegri?
Nú þegar hart er í ári skiptir miklu máli að huga vel að fasteignunum, ekki síst ef setja á þær á sölu. Við tókum saman nokkur ráð, spjölluðum við fagmenn, litum á málningar- og flísaúrvalið og fleira fyrir fólk sem er að hugsa sér til hreyfings.
Fagurkerar á Akureyri
Gamalt iðnaðarhúsnæði við Gránufélagsgötuna á Akureyri leynir heldur betur á sér. Þar búa Auður Skúladóttir og eiginmaður hennar, Hjörtur Fjeldsted, í húsi sem áður hýsti meðal annars smíðaverkstæði, húsbílaþjónustu og dansskóla.
Heimilið listaverk húsfreyjunnar
Heimili Maríu Ólafsdóttur, leirlistar- og myndlistarmanns, er ævintýri líkast. Þar hefur fjölskylda hennar búið í 18 ár og auðséð er að nostrað hefur verið við hvern fermetra.
Dagur Eggertsson
Dagur Eggertsson arkitekt býr og starfar í Osló. Þar rekur hann stofuna Rintala Eggertsson í samstarfi við finnska arkitektinn Sami Rintala. Á undanförnum árum hafa þeir vakið athygli fyrir ferska nálgun á arkitektúr og verkefni sín víða um heim.
Þetta og margt fleira!

