Útgáfa

ge0911

100 hugmyndir, uppskriftir og ráð!

20.8.2009

Yfir 100 hugmyndir, uppskriftir og ráð finnur þú í Græna blaðinu! 5 sælkerar gefa sínar uppáhaldsuppskriftir að grænmetisréttum. Við undirbúum vetrarforðann með súrsuðu grænmeti og skoðum margskyns berjauppskriftir að kökum, ís, bökum og sultum. Æðislegar pönnukökur, lummur, skonsur og vöfflur prýða Græna blaðið ásamt mörgu öðru sem vert er að skoða.

Hefðbundnir þættir eru að sjálfsögðu á sínum stað og þar má nefna Árstíðin á Íslandi, Uppáhalds, Jurtina, Gómsætt án sykurs og Þrep fyrir þrep. Kokkurinn og Kjartan hafa verið á faraldsfæti í sumar og að þessu sinni heimsótti Úlli Gamla Bauk á Húsavík og Kjartan fór á Hafið Bláa. Sunnudagskakan er gulrótar-bananakaka og við skoðum flottar heimagerðar skreytingar

Gestgjafinn kíkti á nokkra bændamarkaði sem farnir eru að skjóta upp kollinum víða og Dominique hitti Slow Food-kokkinn, Friðrik V, á Akureyri.

Græna blað Gestgjafans er gómsætt og girnilegt.

SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ!



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.