Útgáfa
Gat ekki haldið á nýfæddum syni sínum
Í nýjasta tölublaði af Nýju Lífi kennir margra grasa. Viðtal við hana Andreu Róberts sem býr nú í sumarbústað í Kjósinni. Hún segir lífið þó ekki vera eintíma sveitasælu því hún fékk sjúkdóm sem olli svo sárum verkjum að hún gat ekki haldið á nýfæddum syninum sem grét stöðugt. Raggi Bjarna talar um hvernig hann hafnaði heimsfrægð og hljómsveitin Amiina hefur heiminn í höndum sér. Þá sýnum við lesendum einfaldar hárgreiðslur og gefum þeim 7 ráð til að endurvekja lostann. Við spyrjum hvort hamingjan sé ofmetin eða misskilin kennum þér að stela stílnum hennar Audrey Hepburn. Í viðtali við EM-stelpurnar okkar kom í ljós að engin þeirra fer brjáluð í rúmið.
Innlit til Katrínar Hall og girnileg sashimi uppskrift er einnig á meðal efnis og húmor er skoðaður. Ekki má gleyma ævintýralegum tískuþætti með glæsilegri fatahönnun og Detox-dagbók Dísu.
Allt þetta og margt fleira getur þú lesið um í nýjasta tölublaði af Nýju Lífi.
Njóttu vel!

