Útgáfa
NÝ TÆKIFÆRI
„Kreppa er bara annað orð yfir ný tækifæri,“ sagði Jón Páll Vilhelmsson ljósmyndari þegar við heimsóttum hann í gallerí hans á Laugavegi. Galleríið opnaði hann í húsnæði sem hafði staðið tómt í marga mánuði áður en hann flutti inn. Þetta hugarfar var til staðar hjá mörgum sem við heimsóttum við gerð þessa tölublaðs Húsa og híbýla. Á Laugalæk opnuðu hjónin Rakel og Halldór bændamarkaðinn Frú Laugu í húsnæði sem hafði staðið tómt. Þau höfðu búið erlendis og voru vön bændamörkuðum en sáu við heimkomuna að séríslenskan bændamarkað vantaði. Rekstrargrundvöllurinn var aftur á móti ekki til staðar fyrr en eftir hrunið. Það virðist hafa verið rétt ákvörðun hjá þeim því viðtökurnar hafa ekki látið á sér standa.
Sömu sögu er að segja um Ingu Bachmann sem rekur skartgripaverslunina Hringu við Laugaveginn. Hringa er ein af fjölmörgum verslunum sem hafa flutt í auð húsnæði við þessa aðalverslunargötu landsins, sem nær vonandi taktinum aftur fyrr en seinna. Sömu sögu er að segja um veitinga- og skemmtistaðinn Austur sem við heimsóttum í Austurstræti. Húsnæðið sem hann er í var áður notað undir skrifstofur Kaupþings en fólkið á bak við Austur hefur gert það upp af miklum metnaði og mun það iða af lífi fyrir vikið.
Þá er gaman að heyra af Guðmundi Ó. Eggertssyni húsgagnameistara og Hafsteini Sigurbjörnssyni bólstrara, sem dustuðu rykið af fjörutíu ára gömlum teikningum Guðmundar af Svefnstólnum svokallaða. Þeir hófu framleiðslu á ný á þessu klassíska húsgagni vegna aukinnar eftirspurnar eftir íslenskum vörum.
Allt eru þetta litlar sögur af fólki sem sér tækifæri í stöðu sem við fyrstu sýn virðist vonlaus. Við hvetjum lesendur til að styðja við bakið á þeim og öðrum sem leggja sitt af mörkum til að samfélagið nái jafnvægi að nýju.
Þetta og svo miklu meira, nýtt Hús og híbýli er komið í verslanir!

