Útgáfa
60+ einfaldar og flottar uppskriftir
Náttúran fóstrar afurðirnar
Nú er uppskeran í hámarki og þeir sem voru forsjálir nýttu sumarið til að láta jörðina fóstra fræ og útsæði og skila svo dásamlegum verðmætum til að nýta í dýrindis rétti. Þetta nýttum við okkur hér á Gestgjafanum, settum saman uppskriftir og sjá má afraksturinn hér á síðunum. Í hillum verslana má núna fá allt þetta ferska hráefni og um að gera að nota það á meðan hægt er.
Náttúran er dintótt og nýlega féllu kartöflugrösin í Þykkvabænum vegna kulda þannig að uppskeran sem komin er dugar okkur ekki nema fram í febrúar. Þess heldur er áríðandi að nýta kartöflurnar núna á meðan þær eru ferskar. Nú hafa margir, sem áður hafa ekki tileinkað sér garðvinnu, gert tilraunir með ýmiss konar ræktun og hafa komist að því að þar er fundið fé, svo auðvelt er það.
Þetta kemur sér vel og næsta sumar verður framleiðsla heimilanna eflaust mun meiri þegar vitneskjan um dýrðina hefur borist fleirum til eyrna.
- Árstíðin á Íslandi :: Dominique heimsótti Eymund Magnússon í Vallanesi.
- Rautt og rómantískt :: Það er ýmislegt hægt að gera úr rifsberjum, sólberjum og reyniberjum. Sirrý lagaði m.a. saft, sultur, sósu, ís o.fl úr þessum berjum.
- Sælir eru sveppaneytendur :: Úlli lagaði nokkra æðislega rétti úr nýtíndum sveppum, m.a. lerki-, furu- og kóngasveppum og gefur nokkur góð ráð varðandi tínslu.
- Rótargrænmeti er magnað meðlæti – þrungið af næringu :: Rætur eru sælkeramatur og hægt að laga ýmislegt úr þeim. Hér eru m.a. uppskriftir sem innihalda rófur, rauðrófur, gulrætur og steineljurót.
- Hvítkál – ódýrt, hollt og „fjölbreytilegt“ :: Úlli lagaði frábæra rétti úr hvítkáli sem er eitt vanmetnasta kálið.
- Muna nestið! :: Hanna og Guðrún Hrund koma hér með fullt af hugmyndum fyrir nestisboxið, sem henta bæði börnum og fullorðnum.
- Þrep fyrir þrep :: Sirrý sýnir okkur hér hvernig á að baka flatkökur.
- Gómsætt :: Hanna Ingibjörg eldaði þrjá dýrindis pastarétti en pasta er ódýrt hráefni og býður upp á mikla fjölbreytni í matreiðslu.
- Búðaráp :: Hanna Ingibjörg fór í búðir og fann hluti úr ýmsum áttum.
- Grænmetisrétturinn :: Grænmetispítsa er grænmetisrétturinn að þessu sinni.
- Sunnudagskakan :: Sirrý bakaði mömmueplaköku sem er tilvalið að bjóða upp á þegar von er á mörgum í kaffi.
- Eitt vín - einn réttur :: Dominique hitti Sævar Karl, matreiðslumann á Silfri.
- Veitingahúsarýni :: Kokkurinn og Kjartan fóru á Fiskfélagið sem var opnað nýverið í Reykjavík.
- Hvað er uppáhalds ... hjá Þóru Arnórsdóttur?
Girnilegt og skemmtilegt blað með 40 nestishugmyndir fyrir börn og fullorðna, 60+ einfaldar og flottar uppskriftir, reyniber, rifsber og sólber.

