Útgáfa

so0911

Samúræjar

18.9.2009

Í nýjasta tölublaði af Sögunni Allri kennir ýmissa grasa. Fjallað er um Rómverskan byltingarmann, Coco Chanel, Róbinson Krúsó og orrustuna í Tevtóborgarskógi. Þá eru það Albert Einstein, úrvalshermenn Japans ásamt Humphrey Bogart sem við rannsökum líka.

Orrustan í Tevtóborgarskógi // Germanir útrýmdu þremur rómverskum legíónum og hafði orrustan afdrifaríkar afleiðingar, bæði fyrir sögu Vestur-Evrópu og svo fyrir sögu Norðurlandanna sérstaklega.

Albert Einstein // Höfundur afstæðiskenningarinnar varð heimsfrægur og er tákngervingur vísindasnillingsins. Kenningar hans leiddu til smíði kjarnorkusprengjunnar en Einstein var ákafur friðarsinni alla ævi.

Samúræjarnir í Japan // Þeir voru sérfræðingar í dauðanum og réðu sig á mála hjá þeim sem borgaði best. Þeir lifðu engu að síður eftir ströngum siðferðisreglum. Sá sem kallaði skömm og vansæmd yfir sig og sína varð að falla fyrir eigin hendi.

Harðsoðin hetja draumaverksmiðjunnar // Leið „Bogie“ á tindinn var löng og loks þegar allir draumar hans höfðu ræst mætti hann skyndilega örlögum sínum.

Coco Chanel // Hún var eitilhörð kaupsýslukona og reyndi alla ævi að breiða yfir auma æsku á munaðarleysingjahæli.

Og svo miklu meira!

SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.