Útgáfa

ju0901

JÚLÍA

28.9.2009

Nú er komið út þetta fyrsta tölublað af Júlíu.

Alls kyns skemmtilegt efni er að finna í Júlíu og má þar nefna viðtal við Kristin Stewart sem ætlaði fyrst ekki að taka hlutverki Bellu í Twilight. Zac Effron, sem sló í gegn í High School Musical, segir meðal annars frá því þegar hann missti niður um sig buxurnar fyrir framan bekkinn! Júlía býður líka upp á stjörnuspá, gallabuxnaráð, förðunarboðorðin 10, stjörnumola, ráðleggingar um hvernig þú getur útbúið þitt eigið spa, skemmtilegar greinar, próf og margt, margt fleira.

Júlía hélt forsíðusamkeppni í Smáralindinni í byrjun september og við þökkum frábæra þátttöku. Það var virkilega skemmtilegt að allar þessar frábæru stelpur skyldu mæta og taka þátt. Það var ekki hlaupið að því fyrir dómnefndina að velja sigurvegarana úr þessum fjölmenna og föngulega hópi. Að lokum var þó ákveðið að velja sex stelpur til þess að birtast á forsíðu Júlíu í vetur,  á móti frægum stjörnum. Í hverju tölublaði verður að finna viðtal við forsíðustúlkuna eða aðra skemmtilega íslenska stúlku. Forsíðu fyrsta tölublaðs Júlíu prýðir Berglind María Ólafsdóttir sem með hraustleika, fallegri framkomu og framtakssemi heillaði dómnefndina upp úr skónum.

Vona að þið skemmtið ykkur vel við lesningu blaðsins.

SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.