Útgáfa
Ívan grimmi varð syni sínum að bana
Í þessu tölublaði Sögunnar Allrar er farið yfir víðan völl að venju. Fjallað er m.a. um Ívan Grimma sem var fyrsti Rússakeisarinn og drap son sinn og barnabarn og útrýmdi þar með keisaraættinni. Hann iðraðist gjörða sinna óskaplega en það breytti engu um viðurnefni hans, Ívan grimmi.
Frönsku byltingunni er líka gerð góð skil en talið er að 14.000-15.000 menn hafi verið leiddir undir fallöxina í frönsku byltingunni. Henni var ætlað að tryggja mannúðlegar aftökur og hún var komin til sögunnar löngu fyrir byltinguna.
Virtur djasstónlistarmaður, frægur heimskautafari og tíu ára franskur krúnuerfingi. Þetta eru aðeins örfá dæmi um frægt fólk í gegnum tíðina sem horfið hefur á dularfullan hátt.
Þá dreymdi Salomon August Andrée um að komast á Norðurpólinn í loftbelg. Sænska þjóðin hvatti hann áfram og hann sveif út yfir ísinn. En loftbelgurinn hrapaði og leiðangursmanna biðu grimmileg örlög.
Allt þetta og svo miklu meira finnur þú í Sögunni Allri.

