Útgáfa

BAÐBLAÐIÐ!

Innlit, hönnun og 30 síður um baðherbergi!

19.10.2009

Hið árlega Baðblað er mætt á svæðið! Stefnan er sett á að veita lesendum innsýn í heim baðherbergjanna og kíktum við því á nokkur nýleg og flott. Ýmsir eru kannski ekki í framkvæmdafíling þessa dagana þannig að við leggjum einnig nokkra áherslu á dekur, sem kostar oft ekki meira en tímann sem það tekur.

Skautadrottning í Hlíðunum Við heimsóttum grafíska hönnuðinn Ernu Hreinsdóttur í Hlíðarnar þar sem hún hefur hreiðrað vel um sig. Hún er ljóshærð og litfríð, skemmtilega skondin, hláturmild og uppátækjasöm. Og alveg hreint ótrúlega fim á skautasvellinu.

Svolítið a la Scala - Glæsileikinn ræður ríkjum á heimili Bergþórs Pálssonar óperusöngvara og sambýlismanns hans, Alberts Eiríkssonar. Húsgögn í antíkstíl, kristall og gljáandi flygill skreyta rýmið. Þeir fullyrða þó að ekkert á heimilinu sé útpælt.

Auður Capital kaupir í Góða hirðinum - Fjármálafyrirtækið Auður Capital hefur skapað sér sérstöðu á markaðnum fyrir hyggjuvit. Í Borgartúni er að finna nýjar höfuðstöðvar þess og er óhætt að fullyrða að þessar höfuðstöðvar líkjast ekki neinu öðru fjármálafyrirtæki á Íslandi.

Lilja Nótt - Nýútskrifaða leikkonan Lilja Nótt Þórarinsdóttir tók á móti okkur og valdi tíu hluti í sinni eigu sem hún heldur sérstaklega upp á.

ANNAÐ

  • HITT + ÞETTA
  • SPURT OG SVARAÐ
  • GLÆNÝ HÖNNUNARBÓK
  • 10 MILLJÓNIR AURORU
  • NÝJAR BÚÐIR
  • ÁSKRIFENDATILBOÐ
  • HÖNNUNARSAGAN
  • UPPÁHALDSHÚSIÐ

 

SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ!



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.