Útgáfa
Villibráðarblaðið komið út!
Villibráðarblaðið er komið út en þar tökum við fyrir alla innlenda villibráð sem okkur býðst eins og hreindýr, gæs, rjúpu, endur o.s.frv. og útbúum sælkerafæði úr hráefninu. Nokkrir þekktir veiðisnillingar gáfu okkur uppskriftir að uppáhaldsvillibráðarréttinum auk þess sem föstu þættirnir eru með villibráðarþema.

