Útgáfa
Hönnunarblaðið
Hönnunarblaðið - Hönnunarheimurinn er óendanleg uppspretta tækifæra og nýjunga. Hús og híbýli tóku saman heitustu hönnuðina og helstu strauma og stefnur sem tengjast bæði íslenskri og erlendri hönnun. Það ætti því ekki að fara fram hjá neinum hver er hvað í hönnun þetta árið.
Glæsilegt heimili í Leirvogstungu - Í Leirvogstungu í útjaðri stórborgarinnar búa ungu hjónin Halla Margrét Ólafsdóttir og Pétur Davíðsson með fimm börn, hund og tvo stóra páfagauka. Úti í garði eru þau svo með um tuttugu dúfur í dúfnakofa.
Rósa Guðbjartsdóttir í hjarta Hafnarfjarðar - Rósa Guðbjartsdóttir býr ásamt fjölskyldu sinni í áttatíu ára gömlu steinhúsi í hjarta Hafnarfjarðar. Það er margt spennandi fram undan hjá henni en hún er nú að gefa út sína fyrstu matreiðslubók á sama tíma og hún er á kafi í pólitík.
Nikita-húsið lífgar upp á Laugaveginn - Ekki mikil uppbygging hefur átt sér stað við Laugaveg síðustu misseri. Ein afskaplega ánægjuleg undantekning er þó á því. Nú í sumar kom hönnunarfyrirtækið Nikita sér fyrir í húsinu við Laugaveg 56 og tók það í gegn í hólf og gólf.
Halla í Hönnunarmiðstöðinni - Halla Helgadóttir grafískur hönnuður og framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvarinnar velur sína tíu uppáhaldshluti.
ANNAÐ
- HITT + ÞETTA
- SPURT OG SVARAÐ
- HÖGNA SIGURÐARDÓTTIR
- HÚS OG HÍBÝLI LANGAR Í ...
- MÁLAÐ MEÐ AUÐI SKÚLA
- NÝJAR BÚÐIR
- ÁSKRIFENDATILBOÐ
- HÖNNUNARSAGAN
- UPPÁHALDSHÚSIÐ

