Útgáfa
Hélt að ég yrði einhleyp að eilífu
Eva Hlín Hermannsdóttir upplifði sig eina í heiminum þegar hún fyrir rúmum tveimur árum missti öll líkamshár vegna sjálfsofnæmis. Sjúkdómurinn er lítt þekktur þrátt fyrir að vera nokkuð algengur og Eva vill opna umræðu um hann. Hún er tilbúin að miðla af eigin reynslu í von um að auka skilning og þekkingu á sjúkdómnum og hjálpa þeim sem kannski upplifa sig eina eins og hún gerði.
Viðtöl
- Pálína Jónsdóttir fer þessa dagana á kostum sem Völva í samnefndu leikriti sem sýnt er í Kassanum í Þjóðleikhúsinu. Hún er í yfirheyrslu Vikunnar.
- Brynjar Jóhannsson, stundum kallaður Brylli, er listamaður sem er óhræddur við að fara ótroðnar slóðir. Nú er hann með fyrstu skáldsöguna í smíðum sem ætlunin er að gefa út á hljóðbók og flétta inn í hana tónlist.
- Sigríður Beinteinsdóttir söngkona var að gefa út geisladiskinn Jólalögin mín sem inniheldur brot af því besta í bland við nokkur glæný jólalög. Hún deilir fegurðarleyndarmálum sínum með lesendum.
- Guðrún Möller er mörgum kunn, enda komið víða við.Verkefnin eru næg því hún rekur fyrirtæki, vinnur sem flugfreyja og sér um þáttinn Lífsaugað ásamt Þórhalli miðli. Vikan spjallaði við hana um lífið og tilveruna.
Matur
- Volgir grænir kræklingar með kaperssósu
- Kalt kjöt með salati, rauðkáli og ætifífli
- Grænn súpersjeik
- Fjólublár súpersjeik
- Lax í fennel og tímían með mangósalsa
Greinar
- Fimmtán fegrunarráð. Til að stytta tímann, gera smáatriðin auðveldari, spara peninga eða hreinlega bjarga deginum.
- Njótum aðventunnar með börnunum. Tuttugu skemmtilegar hugmyndir að góðum samverustundum á aðventunni sem kosta ekki mikla peninga.
- Þegar mamma og pabbi skilja. Dæmigerð viðbrögð barna á mismunandi aldursskeiðum og hvernig best er að koma til móts við þau.
- Gæðastundir fjölskyldunnar eru mikilvægar og geta verið mjög fjölbreyttar.
- Flugfreyja í farangurshólfinu?Bandaríska lággjaldaflugfélagið Southwest er eitt fárra flugfélaga í heiminum í dag sem enn nær að fylla vélarnar af farþegum. Ekki eru það bara ódýrir farmiðar sem valda því.
Tískan
Fastir þættir- Dagskráin
- Vikan mælir með
- Yfirheyrsla
- Fræga fólkið
- Útlitið
- Flott og gott
- Danski kúrinn
- Matgæðingur
- Kitschfríður
- Lífsreynslusaga
- Krossgáta
- Sudoku og orðaleit
- Stjörnuspá
- Galdrahornið
- Veröld Vikunnar

