Útgáfa
Jólablaðið
Jólablað Húsa og híbýla er komið í verslanir! Föndrað fyrir jólin, jólamarkaðir um allt land og 80 jólagjafahugmyndir eru meðal efnis í þessu blaði. Innlit hjá Katri R. Tauriainen stílista sem segir íslensk jól hátíðlegri og hjá Ástu Sigurðardóttur hönnuði sem er með logandi kerti á jólatrénu.
Jólin 2009 - Jólaundirbúningurinn er kominn á fullt og kennir þar ýmissa grasa eins og alltaf. Mismunandi litir og efni ráða ríkjum í skreytingunum en flestir vilja hanna eitthvað heima, enda blómstrar íslensk hönnun og handverk sem aldrei fyrr auk þess sem sannkallað fönduræði hefur gripið þjóðina. Við kíkjum á föndrið, jólamarkaði, kransa og fleira. Auðvitað fórum við líka í búðaráp þar sem við veljum jólagjafir fyrir sælkerann, þjóðlegu týpuna og þá sem virðast eiga allt.
Íslensk jól hátíðlegri - Fagurkerar kannast eflaust við Katri Raakel Tauriainen stílista en auk þess að starfa í fjölmiðlum hefur hún aðstoðað marga við að flikka upp á heimilið. Hún kann svo sannarlega að skapa jólastemningu á heimilinu.
Með logandi kerti á trénu - Ásta Sigurðardóttir innanhússarkitekt hefur unun af því að skreyta og breyta heima hjá sér. Þessi jólin notar hún efnivið úr náttúrunni í skreytingarnar og jólalitirnir í ár eru rauður og hvítur.
Manfreð Vilhjálms - Við fjöllum um nýja og vandaða bók sem komin er út um Manfreð Vilhjálmsson arkitekt. Manfreð hefur teiknað sumar af þekktustu byggingum landsins og sett markið hátt í listrænu tilliti þau 50 ár sem hann hefur starfað að mótun umhverfis og bygginga.
Heimaskrifstofur rithöfunda - Við kíktum í heimsókn á heimaskrifstofur nokkurra færustu rithöfunda landsins sem senda frá sér ný verk þessi jólin.
Skreytum og breytum með Húsum og híbýlum.

