Útgáfa
Fógetinn örlagavaldur
Sigrún Elsa Smáradóttir og Vilhjálmur Goði Friðriksson hafa búið saman í rúmlega sex ár. Við fyrstu kynni mætti halda að þau væru mjög ólík en undir yfirborði metnaðarfullu stjórnmálakonunnar og gamansama fyrrverandi popparans leynast sveitalegur rokkari og ábyrgðarfullur náttúruunnandi.
Viðtöl
- Katrín B. Fjeldsted er nýr stjórnandi þáttarins Innlit/útlit á SkjáEinum og hefur vakið athygli þar fyrir skemmtileg efnistök og afslappaða framkomu. Á döfinni hjá henni er líka að teikna nýtt húsnæði fyrir krabbameinssjúk börn, í samstarfi við fleiri arkitekta.
- Elfa Gísla leikkona. Líf hennar hefur verið óvenjulegt og oft þyrnum stráð.
- Ásdís Ragna Einarsdóttir, grasalæknir og fyrirlesari, leyfir okkur að skyggnast í snyrtibudduna og deilir fegurðarleyndarmálum sínum með lesendum.
- Guðný Þórarinsdóttir prentsmiður stendur fyrir markaði í Vesturbænum á aðventunni. Guðný er mikill safnari og er umhugað um að hlutir séu endurnýttir.
Matur
- Ávaxtakonfekt
- Fasani með kastaníuhnetum
- Beikonvafin kalkúnabringa
- Jurtafylling
Greinar
- Hárvöxtur í andliti – síðasta feimnismál kvenna? Áður en hafist er handa við að fjarlægja hárin er vissara að komast að rót vandans.
- Aðeins öðruvísi jólagjafahugmyndir ... Við kynntum okkur m.a. íslenskt handverk í heimahúsum og gjafir sem láta gott af sér leiða. Sleppið hugmyndafluginu lausu og sláið í gegn í ár.
- Breytum eldhúsinu í gróðurhús. Solla kennir ræktun sólblóma- og bókhveitigrænlinga í eldhúsinu.
- Jólaskraut. Ólíkir siðir og sniðugt skraut.
- „Ég er ekki litla barnið þitt lengur!“ Hvers vegna dettum við aftur í sama hlutverk og í æsku þegar við hittum foreldra okkar? Skoðum það aðeins og hvernig er best að standa í fæturna gagnvart mömmu og pabba.
- Er líf þitt miðlungs? Á vefsíðu nokkurri getur hver sem er fengið frásögn sína birta, hversu miðlungs sem hún kann að vera. Margt skondið er þar að finna og við birtum nokkur dæmi.
Tískan
Fastir þættir
- Dagskráin
- Vikan mælir með
- Yfirheyrsla
- Fræga fólkið
- Útlitið
- Flott og gott
- Danski kúrinn
- Matgæðingur
- Kitschfríður
- Lífsreynslusaga
- Krossgáta
- Sudoku og orðaleit
- Stjörnuspá
- Galdrahornið
- Veröld Vikunnar

