Útgáfa

ge0707

Úti að elda með Gestgjafanum! - Eldað á báli

22.6.2007

Eldað úti í náttúrunni er meginþema nýjasta Gestgjafans. Þar er sýnt í máli og myndum hvernig við getum á afar auðveldan hátt matreitt undir berum himni án mikillar fyrirhafnar. Stemningin er ógleymanleg þegar eldað er yfir báli og hafa krakkarnir ekki síður gaman af að taka þátt í slíkri eldamennsku.

Nokkrar útfærslur að girnilegum samlokum sem við getum sjálf útbúið og tekið með í lautarferðina eða til að hafa með í bílnum á leið í fríið er einnig meðal efnis sem og sumarleg salöt og salatsósur.

Við gefum veiðimönnum hugmyndir um hvernig má elda nýveiddan lax og silung og förum enn fremur alla leið til Halifax og kynnumst matarmenningunni þar, en það er borg sem kemur virkilega á óvart!

Smökkun á kassavínum, kokkteilar í garðveisluna, sunnudagskakan, kolagrilluð kengúra og humar er einnig meðal efnis í nýjasta tölublaði Gestgjafans ásamt fjölmörgu öðru spennandi efni.

Sítrónur í matargerð – lax og silungur – kengúra á grillið – tapas frá San Sebastian – samlokur í ferðalagið – Halifax – smökkun á kassavínum – kokkteilar í garðveisluna – sumarleg salöt og salatsósur.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.