Útgáfa
Sjónvarpsþættir
Að þessu sinni er þema Júlíu sjónvarpsþættirnir. Kósí sjónvarpskvöld, heitustu þættirnir og þættir sem urðu að kvikmyndum og öfugt. Að sjálfsögðu eru flott plaköt inn í blaðinu og sjálfspróf þar sem þú kemst að hvað þú veist um þættina. Viðtal við heitasta bandið þessa stundina Tokio Hotel er meðal efnis í blaðinu ásamt viðtali við hina frábæru Katherine Heigl. Þá eru lesendabréfin á sínum stað ásamt stjörnuspánni, stjörnumolum, pennavinum og öllu hinu.
Tryggðu þér eintak á næsta sölustað!

