Útgáfa

ge1001

Ofurfæði

21.1.2010

Við sýnum ykkur í þessu tölublaði hvernig hægt er að taka inn í daglega fæðu sumt af því sem forfeður okkar fundu út að gerir líkamanum gott. Sumt hefur núna verið vísindalega sannað að er rétt. Annað tökum við trúanlegt af því að gengnar kynslóðir þrifust vel á þessu fæði.

Þar á meðal eru fjörmiklir forréttir, nýjar hugmyndir af fiski, íslenskt og ofurgott lambakjöt og glæsilegir aðalréttir.

Glaðlegir grænmetisréttir, upplífgandi eftirréttir sem engin ástæða er til að fá samviskubit yfir eru einnig á meðal efnis.

Að sjálfsögðu eru líka föstu liðirnir á sínum stað og má þar til dæmis nefna vínsíðurnar, molar/bix, veitingahúsarýnina og gómsætt án sykurs.

Gangi ykkur vel að tileinka ykkur nýjungarnar!

Skoða áskriftartilboð



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.