Útgáfa

sigga

Hús og híbýli - nýr ritstjóri

7.5.2010

Nýr ritstjóri hefur tekið við tímaritinu Húsum og híbýlum, Sigríður Elín Ásmundsdóttir, sem hefur verið blaðamaður og aðstoðarritstjóri á tímaritinu síðan í ágúst 2006. Hús og híbýli er rótgróið tímarit á íslenskum tímaritamarkaði og hefur komið út í rúmlega 30 ár.

„Lesendur Húsa og híbýla munu strax í maí taka eftir breytingum á blaðinu, við á ritstjórninni ætlum að aðlaga blaðið að stemningunni í þjóðfélaginu með því að vera með fullt af ráðum og Gerðu-það-sjálfur-hugmyndum. Innanhússarkitekt og smiður munu svara spurningum lesenda og fleira nýtt efni, eins og Fagurkerinn, Uppáhaldsgatan mín og Vinnustofan mun hafa fastan stað í blaðinu. Við ætlum að gera blaðið  ferskara og efnismeira, minnka textann og fjölga fallegum myndum. Fara í mörg innlit og gera  allskonar hönnun góð skil. Hús og híbýli verður flottara og ferskara blað,“ segir Sigríður Elín, nýr ritstjóri Húsa og híbýla.

Maíblað Húsa og híbýla kemur út fimmtudaginn 6. maí þar sem hinni fögru Akureyri  eru gerð góð skil, má þar til dæmis nefna stórskemmtilegt innlit til Þorbjargar sem er Frúin í Hamborg á Akureyri og  rómantískt innlit til Bryndísar og Marcos. Við kíktum líka á  Safnasafnið og mynduðum falleg hús í bænum. Þá fylla falleg innlit 36 síður í blaðinu, auk þess er þáttur sem við köllum Skref fyrir skref þar sem lesendum eru kenndir margskyns sniðugir hlutir og gefin 25 ráð hvernig bola má burtu vetrinum heima við og gera heimilið sumarlegra auk þess sem fjallað verður um grafískan hönnuð sem hefur hannað fyrir MTV og Topshop.

Ritstjórn Húsa og híbýla tekur við góðum hugmyndum og ábendingum frá lesendum á netfanginu  hogh@birtingur.is.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.