Útgáfa
Grillblaðið
Grilleldamennska er árviss viðburður í lífi flestra landsmanna. Um leið og Vetur konungur sleppir takinu fer grillilmurinn að berast að vitum okkar úr görðum og veröndum. Nokkur atriði er gott að hafa í huga þegar grilleldamennskan hefst til þess að sem bestur árangur náist. Við gefum góð ráð í þessu tölublaði auk þess sem nýjar hugmyndir að góðum grillréttum eru á síðum blaðsins í löngum bunum. Við höfum alltaf í huga að uppskriftirnar séu einfaldar og auðveldar af því að lesendur eru mjög duglegir að láta okkur vita af óskum um slíkt.
Ung stúlka sem er að stíga sín fyrstu skref í alvöru eldamennsku fann út fyrir skömmu af eigin rammleik að það skipti máli að láta kjötið standa á borði í nokkrar mínútur eftir grillun til að leyfa því að „jafna sig“ áður en þess var neytt. Þetta fannst henni mikil vísindi. Það gefa sér ekki allir tíma til að finna bestu aðferðirnar við að ná árangri en til þess erum við einmitt, þ.e. til að stytta ykkur leiðina að því að ná besta árangri sem hægt er í eldamennskunni. Skoðið því þetta tölublað vel og eldið fullkominn grillmat eftir okkar leiðbeiningum.
Gangi ykkur vel!

