Útgáfa

ml1001

Horfðist í augu við óttann

7.5.2010

Guðjón Davíð Karlsson leikari, sem betur er þekktur undir gælunafninu Gói, var kallaður prestadjöfull í grunnskóla og fékk að heyra það bæði hjá kennurum og nemendum. Hann segir frá þessu og fleira í Mannlífsviðtalinu. Hann lét ekkert aftra sér frá því að verða leikari og fann sig óvænt í leikstjórn.

Nýtt tölublað Mannlífs með fjölbreyttu efni er komið út. Þar er meðal annars að finna úttektir um Íslandsmótið í fótbolta og hrunið, einstakan ljósmyndaþátt um eldgosið í Eyjafjallajökli eftir verðlaunaljósmyndarann Rakeli Ósk Sigurðardóttur, Eurovison-markmið Heru Bjarkar og glænýja smásögu eftir Kristján Hreinsson Skerjafjarðarskáld.

Ekki má svo gleyma að nefna leiðbeiningar Mannlífs um hvernig fólk kemur sér í form á aðeins hálftíma á dag og hvernig skúffurithöfundar verða að útgefnum rithöfundum. Kvikmyndir, tónlist, bækur, bílar, tæki og tól. Þetta og fleira í nýju Mannlífi.

Skoða áskriftartilboð!



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.