Útgáfa

hh0709

Sveitarómantík

23.7.2007

Hús og híbýli vildi að blaðið endurspeglaði að þessu sinni þann hluta af Íslandi sem er hvað mest í brennidepli á sumrin; landið, sveitasæluna og eyjarnar. Við fórum norður í land í heimsókn til Margrétar Jónsdóttur myndlistarmanns sem er með heimili og vinnustofu, rekur búð, hefur nýlokið við að sjá að hluta til um útlit á flottri líkamsræktarstöð og er að undirbúa opnun glæsilegs veitingastaðs.

Fyrir norðan tókum við einnig ferjuna út í Hrísey sem er orðinn vinsæll áfangastaður ferðamanna á sumrin. Þar tóku íbúar okkur opnum örmum svo úr varð stórskemmtilegt innlit í gamalt hús þar sem "kitsch" ræður ríkjum.

Við brugðum okkur einnig í klukkutíma bátsferð með ferjunni Baldri á Breiðafirði og lögðum að bryggju í Flatey. Það var eins og við hefðum skotist með tímavél ein hundrað ár aftur í tímann. Við okkur blöstu ævagömul timburhús í öllum regnbogans litum, malarstígur og fornir traktorar.

Þetta er það sem þúsundir Íslendinga upplifa á sumrin. Þegar GSM-símarnir eru hættir að ná sambandi og áhyggjur af amstri hversdagsins víkja fyrir áhyggjur af brjáluðum kríuhópum. Við lentum einmitt í einum slíkum úti í Flatey og lét Kristinn ljósmyndari sig vaða inn í hópinn til þess að ná góðri mynd. Hann var goggaður í hvirfilinn en fékk í sárabætur flottar myndir af trítilóðu kríunum. Þær sóma sér vel innan um allar hinar frábæru myndirnar sem við náðum fyrir blaðið þennan mánuðinn.

Hlutirnir hans Hugleiks - Það er ekki komið að tómum kofanum þegar Hugleikur Dagsson myndasöguhöfundur er annars vegar. Hann sýndi okkur 10 uppáhaldshluti sem allir eru hver öðrum litríkari.

Einu sinni í viku í Góða hirðinn - Heimili Ingu Elínar, myndlistarmanns og hönnuðar, í Mosfellsbæ er litríkt og fallegt. Auk hennar eigin hönnunar er þar að finna ýmsa góða gripi, sem margir eru fengnir í Góða hirðinum.

Breyttu hesthúsi í nútímaheimili - Þegar arkitektarnir Tom Erik Aschehoug og Marianne Nauen fluttu inn í gamalt hesthús í Osló frá árinu 1930 tóku þau það í gegn og endurhönnuðu með öll helstu nútímaþægindi í huga. Útkoman er hreint út sagt stórglæsileg.

Heimur Hafdísar í Þingholtunum - Hafdís Árnadóttir er stofnandi og eigandi Kramhússins. Hún á íbúð í húsinu beint á móti danssmiðjunni og ræður því ríkjum í þessu litla porti.

Hitt og þetta – Spurt og svarað – Sætar sessur – Góð hugmynd – Nýjar búðir – Áskrifendatilboð – Smekkfólkið – Uppáhaldshúsið



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.