Útgáfa
Í sól og sumaryl
Jæja, stelpur, nú er sumarið langþráða loksins komið. Síðustu dagar hafa verið yndislega hlýir og sólríkir og hvað er betra á þessum dögum en að viðra sig, fara í sund, göngur eða þegar maður nennir ekki að hreyfa sig að flatmaga bara úti á mjúkum stól.
Á sumrin (sem og aðra daga) þá er alltaf gaman að hlæja að skemmtilegum og vandræðalegum augnablikum og það er akkúrat það sem við ætlum að gera í þessu tölublaði. Við förum yfir pínleg atvik stjarnanna og gefum ráð um hvernig hægt er að lifa af þessar pínlegu stundir. Við skoðum að sjálfsögðu sumartískuna sem er uppfull af björtum litum og skemmtilegheitum, núna er tíminn til að leggja svörtu fötunum og taka upp hinar flíkurnar sem allt of sjaldan líta dagsins ljós. Nú skulum við leggja uppháu skónum og taka fram sandalana og sumarkjólana.
Júlía tók viðtal við Haffa Haff sem er skemmtilega litríkur karakter sem þorir og lætur sig ekki varða um hvað öllum hinum finnst um hann. Einnig er viðtal við hana Rihönnu sem má kannski segja að sé kvenkynsútgáfan af Haffa Haff, en hún er þekkt fyrir að fara sínar eigin leiðir. Þetta er fólk sem þorir og við ættum að taka þau bæði til fyrirmyndar.
Hún Karólína er stúlka í 10. bekk sem kom til Júlíu í starfskynningu og til að veita henni raunverulega innsýn í heim tímaritanna þá fékk hún það verkefni að taka myndir og viðtal við vinkonur sínar um sumarið sem er fram undan og afraksturinn sjáum við á blaðsíðu 50.
Hugmyndabankinn hennar Hildar sýnir skemmtileg afbrigði af beltum sem auðvelt er að búa til og líta mjög smart út. Matgæðingurinn skrapp í smá sumarfrí og gefum við þess í stað freistandi pastauppskrift sem er góð í pikknikkið.
Plakötin, tónlistin, stjörnuspáin og bíómyndirnar eru að sjálfsögðu á sínum stað ásamt gæludýrunum, lesendabréfunum og öllu hinu.
Afmælisdagar áskrifenda virka þannig að við tökum fram þá áskrifendur sem eiga afmæli á tímabilinu sem blaðið er til sölu og birtum nöfnin. Við höfum heyrt af því að einhverjar stelpur séu súrar yfir að hafa ekki birst í blaðinu en oftast er það vegna þess að einhver annar en þær sjálfar er skráður áskrifandi eins og t.d. foreldar, þá getum við því miður ekki séð afmælisdagana ykkar.

