Útgáfa
Draumar
Í þessu blaði skoðum við margt skemmtilegt tengt draumum. Við erum eflaust allar pínu dagdraumamanneskjur, enda getur það verið mjög skemmtilegt að detta niður í draumana sína og hugsa um hvernig framtíðin verður. Það er hollt að eiga góða drauma og markmið, svo á maður að hugsa um hvernig maður getur látið þá rætast og gera það.
Ashley Greene og Taylor Lautner eru í viðtölum hjá okkur og við skoðum skemmtilega boli sem auðvelt er að útfæra í hugmyndabankanum.
Tískuþátturinn er hress og frísklegur og Tobba fer yfir allskonar skemmtileg húsráð við hinu og þessu. Ohh, Ellí!, lesendabréfin, spurt og svarað, tónlistin og lukkupotturinn eru svo að sjálfsögðu á sínum stað, líkt og vanalega.
Njótið lífsins, stelpur!

