Útgáfa

gl1006

Aukablað um Úrvalsdeildina 2010/2011

9.8.2010

Nú er komið út sjötta tölublað af Goal og þökkum við fyrir góðar viðtökur. Við höfum fjallað um allt það helsta sem hefur verið að gerast í fótboltanum um allan heim ásamt því að vera með viðtöl við íslenska upprennandi snillinga, fjallað um íslenska boltann og margt fleira. Ætlunin var og er enn að vera með sneisafullt blað af fróðleik og skemmtilegu efni fyrir fótboltaáhugafólk, við vonum að þið séuð sammála um að það hafi tekist.

Nú, þegar HM er lokið færir maður sig að næsta viðfangsefni. Smápása frá sjónvarpinu er reyndar kærkomin enda sumar og góða veðrið vonandi ekki alveg búið. Íslenska deildgl1006bin hefur reyndar verið einkar spennandi að fylgjast með þetta sumarið og fengum við strákana frá Fótbolti.net til að fjalla aðeins um deildina. Í þessu tölublaði renna þeir yfir Pepsi-deild karla og kvenna og fyrstu deildina.

Í næsta mánuði fara erlendu deildirnar af stað og fylgir með þessu tölublaði sérstakt aukablað um Ensku úrvalsdeildina þar sem við förum yfir hvert lið fyrir sig, skoðum tímasetningar og fleira.

Í þessu sjötta tölublaði af Goal förum við einnig ítarlega yfir frönsku (Ligue 1) og þýsku (Bundesliga) deildirnar. Þá eru kapparnir Jose Mourinho og Steven Gerrard grandskoðaðir ásamt eftirminnilegustu atvikunum á HM. Einnig er að finna í Goal að þessu sinni allt um brasilísku varnarmennina og Atletico Madrid, goðsögnina Henrik Larson og upprennandi snilling að nafni Diego Contento.

Goal kemur að venju út einu sinni í mánuði og hvetjum við lesendur til að tryggja sér eintak með því að gerast áskrifendur.

SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ!



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.