Útgáfa

hh1008

Hugmyndablaðið!

13.8.2010

Flest erum við hafsjór af hugmyndum og þetta tölublað er tileinkað sköpunargleðinni.

Við heimsóttum fólk sem lætur hugmyndir sínar verða að hlutum, listaverkum eða húsgögnum sem við hin getum notað; við hittum til dæmis vöruhönnuðinn Sigríði Heimisdóttur sem hefur verið að hanna fyrir risafyritæki eins og IKEA og Fritz Hansen, Tinnu Gunnarsdóttir iðnhönnuð og eiginmann hennar, listmálarann Sigtrygg Bjarna Baldursson, en þau búa í húsi sem annar listmálari lét byggja og heitir því fallega nafni Englaborg. Við heimsóttum líka Ingibjörgu Hönnu, sem hannaði Krummaherðatrén ofsafínu, og Hrefnu Sætran landsliðskokk sem hannar uppskriftir, ef svo má að orði komast, hennar sköpunargleði er að minnsta kosti mikil í eldhúsinu þar sem hún galdrar fram dásamlegan mat sem bræðir bragðlaukana. Þetta, hollenski hönnuðurinn Maarten Baas arkitekt sem hannaði heilsulind í Tjörnina og margt fleira. Njótið og látið hugmyndir ykkar verða að vinningskúlum.

Englaborg

Hjónin Tinna Gunnarsdóttir iðnhönnuður og Sigtryggur Bjarni Baldvinsson listmálari búa í flottu fúnkíshúsi á Flókagötu sem gengur undir nafninu Englaborg. Þau eru aðeins önnur fjölskyldan sem þarna býr en Jón Engilberts listmálari byggði húsið 1942.

Heillandi hús í Malmö

Sigríður Heimisdóttir iðnhönnuður á eftir að sakna hússins síns í Malmö en fjölskyldan stefnir á að flytja heim til Íslands á næstunni. Sigríður hefur unnið fyrir bæði IKEA og Fritz Hansen og er gaman að sjá hvernig hún hagar hlutunum heima við.

Annað

  • Hitt og þetta
  • Spyrðu innanhússarkitektinn
  • Spennandi bækur
  • Litríkur landsliðskokkur
  • Skref fyrir skref – Náttborð í þremur stílum
  • 100 hugmyndir fyrir heimilið
  • Skref fyrir skref – Chesterfield-sófasett málað
  • Sumarhús úr skipi
  • Stílhreint og flott í Jónsgeisla
  • Hönnun – Ísjaka í Hljómskálagarðinn
  • Vinnustofan
  • Gersemar
  • Hönnun – Maarten Baas
  • Fagurkerinn
  • Gatan mín

 

SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.