Útgáfa
Græna blaðið komið!
Allt nýupptekna grænmetið lenti í gómsætum réttum í nýjasta tölublaði Gestgjafans og þar eru nýjar íslenskar kartöflur í hávegum. Við höldum líka áfram að fylgja berjasprettunni eftir og kennum saftgerð.
Hanna Friðriks sendi okkur nokkrar ítalskar uppskriftir og segir frá ferð sinni á basilakrana. Við athugum hvað hægt er að geyma og frysta af uppskerunni og höldum áfram sífelldri leit okkar að góðum aðferðum til að elda matinn ódýrt án þess að slá af gæðum. Nokkrir valinkunnir sælkerar gáfu okkur uppskriftina að uppáhaldsgrænmetisréttinum.

