Útgáfa
Grænt og vænt
10. tölublað Gestgjafans er komið út með umfjöllunum og uppskriftum sem sóttar eru til náttúrunnar sem nú skartar sínu fegursta og gjöfulasta.
Allt dásamlega grænmetið er nú fullþroskað eins og það verður best og fallegast og við lékum okkur með þetta frábæra hráefni í Gestgjafaeldhúsinu. Útkoman er á síðum nýjasta tölublaðsins í máli og myndum. Hollustan er ekki umdeild og bragðið er eins gott og það getur orðið ljúffengast.
Við fengum nokkra valinkunna einstaklinga til að gefa okkur uppskrift að uppáhaldsgrænmetisrétti sínum og síðan skoðuðum við hráfæði og svörum því hvað lifandi fæði er. Allir réttirnir miðast við að vera ljúffengir um leið og við leiðum hugann að hollustunni sem er allt í kringum okkur núna og því hvernig við getum gert hollusturéttina girnilega.
Bökur
Sirrý bakaði nokkrar sætar og góðar bökur jafnframt því sem hún gefur hér grunnuppskrift að bökudeigi.
Þrep fyrir þrep
Að þessu sinni sýnum við hvernig laga á grænmetislasagna.
Grillveisla verður brúðkaupsveisla - Engan af um fjörutíu gestum sem boðið var í grillveislu grunaði að hann væri á leið í heljarmikla brúðkaupsveislu!
Gulrætur eru stjörnufæða - Gulrætur eru taldar til þeirra grænmetistegunda sem eru stjörnufæða fyrir húðina og til eru óteljandi leiðir til að matreiða úr þeim bæði sæta og salta rétti. Sirrý útbjó nokkra gómsæta rétti úr þessari stjörnufæðu.
Gleymda kálið
Grænkál er eitt vannýttasta kál sem um getur en það er hægt að nota það á ýmsa vegu.
Vínsíðurnar
Fyrstu viðbrögðin við nýju vínsíðunum voru mjög jákvæð og Dominique og Eymar halda áfram á þeim nótum.
Spurt og svarað – Torgið – Í uppáhaldi – Búðaráp – Allrahanda – Molar og bix – Vínbix –Veitingahúsarýni – Orðsending – Happdrætti

