Útgáfa
Barnaherbergisblaðið!
Kíkt er í fjöldann allan af barnaherbergjum og hitt frábæra krakka sem sýndu stoltir vistarverurnar.
Það er hægt að fara ýmsar leiðir að gerð barnaherbergja en það fer ekki á milli mála að íslenskir foreldrar leggja sífellt meiri metnað í að skapa fallegt umhverfi fyrir börnin. Eins og kemur glögglega fram í blaðinu bjóða verslanir landsins líka sífellt meira úrval af húsgögnum og leikföngum í herbergin.
Af öðru í tímaritinu ber helst að nefna bárujárnshöll Spessa ljósmyndara og fjölskyldu hans á Barónsstíg sem bókstaflega iðar af lífi. Fjölskyldan er öðrum gott fordæmi en hún gerði upp eitt af gömlu húsunum í miðbæ Reykjavíkur, en sífellt fleiri þeirra eru í hættu að vera rifin
Ævintýraheimar - Nú fer að líða að því að börnin geta ekki lengur leikið sér úti allan daginn. Í þessum flotta myndaþætti taka þá skemmtilegir ævintýraheimar við.
Barnaherbergi í Waldorf-anda - Allt í umhverfi barnsins hefur sterk mótandi áhrif á það. Sigrún Gunnarsdóttir Waldorf-uppeldisfræðingur tók saman nokkra frábæra punkta sem koma sér vel. Þó að góður vilji sé fyrir hendi sé oft margt sem betur megi fara. Oft þurfi að hægja á keyrslunni og hugsa um hvað sé börnunum fyrir bestu. Það er vert að athuga stórgóð heilræði hennar.
Beint frá Bollywood - Heimili Sigurbjargar Sverrisdóttur verslunarkonu er ævintýri líkast. Hún hefur ferðast um Indland og Austur-Evrópu, ein síns liðs, og safnað dýrindismunum.
Heima hjá Spessa - Hús og híbýli heimsótti ljósmyndarann Spessa og Áróru, eiginkonu hans, á stórskemmtilegu heimili þeirra. Fjölskyldan býr í eldrauðu og tignarlegu bárujárnshúsi við Barónsstíg.
Púðar gefa lífinu lit -Við tókum saman nokkra flotta púða sem geta lífgað upp á innbúið og fært sólina inn á heimilið.
Louise Campbell - Dansk-breski hönnuðurinn Louise Campbell hefur farið mikinn síðustu misserin. Hún vann nýlega Bruno Mathsson-hönnunarverðlaunin og var valin hönnuður ársins 2005 af Bo Bedre.

