Útgáfa
Ekki fyrir viðkvæma!
Aron Pálmi í yfirheyrslu - Erlendar fréttastiklur – Gullæðið – Bloggið – Blóðbað í Írak – Lífsbjörg og dauði – Starfið mitt – Kaffihúsið – Heilsa og hreyfing – Karlasnyrtivörur – Póstkortið – Með munkum – Bókmenntahátíð – Kvikmyndir – Ólæknandi - Lokasvar
Gullæðið á norðurslóðum - Rússar hafa gert tilkall til norðurpólsins og þó að einhverjum kunni að þykja krafan spaugileg þá er eftir miklu að slægjast á þessum slóðum.
Skipulagsbreytt einelti - Fréttaskýring um slæman starfsanda og einelti á Veðurstofu Íslands. Veðurstofustjóri tók á sínum tíma ekki mark á stormviðvörun sálfræðinga um einelti. Hann hafnar eineltinu enn og skýrir óánægjuna með skipulagsbreytingum.
Blogg, blogg, blogg - Bloggið er orðið mótandi afl í þjóðmálaumræðunni en í íslensku blogghjörðinni eru vitaskuld bæði hafrar og fjölmargir sauðir. Mannlíf birtir lista yfir tíu bestu og verstu bloggarana.
Blóðbaðið í Írak - Ekkert lát er á mannfalli í Írak og þótt stuðningur við veru Bandaríkjamanna í landinu fari þverrandi líta þeir sem næst standa George W. Bush forseta á það sem ósigur að draga herinn frá landinu og vilja klára stríðið. Til þess meðal annars að koma í veg fyrir frekari hörmungar.
Lífsbjörg við strendur Líbýu - Bjargvætturinn Ólafur Ragnarsson, skipstjóri á Eyborgu, lenti í milliríkjadeilu eftir að 21 flóttamaður komst á túnfiskskvíar sem skip hans dró í lögsögu Líbýu.
Mannlíf - Spegill samtímans

