Útgáfa

nl0112

Yrsa nýtur þess að hræða fólk

27.1.2012

Enginn íslenskur rithöfundur seldi meira af bókum en Yrsa Sigurðardóttir í fyrra. Henni sárnaði hvernig talað var um nýjustu bók hennar, Brakið, í helsta bókmenntaþætti Ríkisútvarpsins og í einlægu viðtali svarar hún gagnrýnendum fullum hálsi.

Blaðið er stútfullt af íslenskri, splunkunýrri og óséðri tísku. Í tískuþætti eftir Rafael Pinho, Ernu Hreinsdóttur og Þorstein Blæ eru nýjar flíkur frá Veru Þórðar, Munda, Einveru, Kronkron og fleiri. Ingvar Helgason segir frá fatamerki hans Ostwald Helgason, sem nýtur mikilla vinsælda og var uppgötvað af Opening Ceremony.

Rætt er við íslenskar konur sem snúið hafa til múslímskrar trúar og bera blæju með stolti. Fjallað er um mexíkanska lögreglustjórann Marisol Valles Garcia sem stundum er nefnd sem hugrakkasta kona í heimi og konuna sem stjórnar Pepsi og talin er valdamest í viðskiptalífinu. Rætt er við frumkvöðla í geðheilbrigðismálum og yogafræðum og veitt eru frábær ráð til að lifa í núinu.

Mælt er með frábærum kvikmyndum og tónlist, og uppskriftum að smekklegum þynnkumat.

Skoða áskriftartilboð



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.