Útgáfa
Sneisafullt af áhugaverðum fréttum.
Tungumál sorgarinnar - Fjöldi einstaklinga leitar sér sáluhjálpar í bloggheimum þegar erfiðleikar steðja að. Í ítarlegri fréttaskýringu Mannlífs er rætt við fimm einstaklinga sem allir hafa bloggað um veikindi sín og missi fyrir alþjóð. Þeir segja bloggið hafa rofið þagnarmúrinn – það sé hið nýja tungumál sorgarinnar.
Ofbeldisbörnin - Raunveruleg og gróf slagsmál íslenskra ungmenna eru orðin eftirsótt afþreying á Internetinu. Þeir sem taka ofbeldið upp og setja á vefinn segjast vera að sýna heiminn eins og hann er.
Varúð! Bubbi er að koma - Skrifblindan stöðvar ekki Bubba Morthens sem sendir fljótlega frá sér ljóðræna bók með laxveiðisögum. Mannlíf birtir kafla úr bókinni.
Línudans í Tyrklandi - Abdulla Gul, nýr forseti Tyrklands, þarf að stíga pólitískan línudans undir haukfránu augnaráði herforingja sem telja sig standa vörð um hugmyndafræði Mustafa Kamal Ataturk, fyrsta forseta landsins.
Karlar í kreppu - Nútímakarlinn kann ekki að hjálpa sér sjálfur og býr í stelpuherbergi.
Framtíðarlausn eða froða? - Þriðja kynslóð farsíma hefur verið í notkun víða um heim frá árinu 2001. Reynslan gefur hins vegar ekki ástæðu til bjartsýni á Íslandi.
Kátir biskupar á Grænlandi - Hafnfirskar skákkempur fóru með Hróknum í ævintýralega skáklandnámsferð til Grænlands.
Kvikmyndir - Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík hefur aldrei verið glæsilegri en nú. Mannlíf fer yfir það helsta og ræðir við danska leikstjórann Peter Schønau Fog sem keppir um titilinn „uppgötvun ársins“ og verðlaunagripinn Gyllta lundann á hátíðinni.
„Dauði stjórnmálanna“ fyllti þjóðina þó engum harmi. Hún var lúsfegin að fá loks frið frá eilífu karpi böggara og bloggara. Sumarið 2007 var langþráð hlé frá „dauðastríði“ íslenskra stjórnmála. – Hallgrímur Helgason fer yfir stjórnmálalandslagið eftir að allt datt í dúnalogn og stjórnmálaflokkarnir urðu að hálfgerðum fatabúðum
