Útgáfa
Baðblaðið er komið!
Það eru baðherbergin sem eru í fókus hjá okkur að þessu sinni. Við fórum út um borg og bý, ræddum við arkitekta, smekkfólk og sérfræðinga í hinum ýmsu verslunum til að reyna að fanga þverskurð íslenskra baðherbergja dagsins í dag. Í blaðinu eru fimmtán flott baðherbergi og vonum við að lesendur hafi gagn og gaman af því að rýna í efnisval og hönnun.
Það er aldrei lognmolla hjá Aðalheiði Birgisdóttur, eða Heiðu í Nikita, eins og hún er kölluð. Hún bauð blaðamanni og ljósmyndara í kaffi í skemmtilegri íbúð sinni í Hafnarfirði.
Hjónin Dagný Ming Chen og Ragnar Baldursson, sendiráðunautur hjá utanríkisráðuneytinu, búa í parhúsi í Seljahverfinu. Húsfreyjan opnaði í vor glæsilega gjafavöruverslun, Xelenta, þar sem handgerðir listmunir og ljós skreyta rýmið og bíða eftir að skreyta heimili í landinu.
Við Kirkjustétt búa hjónakornin Þorbjörg Dögg Árnadóttir og Hallgrímur Friðgeirsson arkitekt með strákana sína tvo. Hjónin eru miklir fagurkerar og hafa unun af því að nostra við heimili sitt og þar má finna marga fagurlega hannaða hluti.
Eimskip og dótturfélagið Innovate vígðu nú í haust umhverfisvænustu skrifstofubyggingu Bretlands. Hönnunin setur öðrum gott fordæmi en húsið vekur athygli út um allan heim.
Hús og híbýli lætur renna í bað - Einfalt og nútímalegt í Akurhvarfi - Steinvölufílingur á Njálsgötunni - 8 kaldir kranar - Hlýlegt í hvítu og brúnu - Tvö listileg baðherbergi - Lítið og smart á Háteigsvegi - Baðar sig í fossi - Dúndurflott draumabað - Frístandandi baðker - Svartar flísar allsráðandi - Baðherbergi í evrópskum stíl - Punkturinn yfir i-ið
Hús og híbýli - Tryggðu þér eintak!

