Nýtt Líf
Heilsublað
Nýtt Líf er komið út sneisafullt af skemmtilegu efni. Eldhugar Íslands eru útnefndir, lausnir fyrir óheilbrigt hár eru skoðaðar. Eva Joly er hörkutól sem elskar að klæða sig og opnar sig nú í einkaviðtali! Heilsan er tekin í gegn á 20 síðum sem fjalla um næringu og holltustu fyrir líkama og sál.
Fegurðarleyndamál Brynju Nordquist eru skoðuð auk þess sem þú kemst að því hvað framtíðin ber í skauti sér í stjörnuspánni fyrir árið 2010. Þá er viðtal við söngkonuna Ragnheiði Gröndal sem segist hafa verið kölluð fallega stelpan með stóra rassinn.
Þetta og margt fleira finnur þú í nýjasta tölublaði Nýs Lífs.

